Um mig


Ég heiti Eyrún Baldursdóttr og á heima í Borgarnesi. Ég er að fara út sem skiptinemi til borgarinnar Forlí á Norður-Ítalíu. Ég er 17 ára, fædd þann 13.apríl 1993. Ég á þrjár eldri systur, mömmu og pabba, og 9 litla
frændur og frænkur. Ég er í Menntaskóla Borgarfjarðar á náttúrufræðibraut og vinn í Hyrnunni. Ég æfi söng og spila á fiðlu en fyrir utan það er ég frekar löt. Bara róleg stelpa sem elskar tónlist, vinina, bækur, dýr og útivist.


Það var aldrei planið að fara til Ítalíu, England heillaði alltaf en svo var það allt í einu ekki í boði lengur. (Kenni Icesave um það) Þá byrjaði ég að pæla í Suður-Afríku.. en svo var það bara allt í einu ekki í boði lengur heldur! Þá fór ég nú að verða ansi pirruð, en Dómíníska Lýðveldið hljómaði nú ekki svo slæmt, eða allavega ekki fyrir mér.. pabba leyst nú ekkert á það. :) Þá rak ég augun bara allt í einu í Ítalíu, og þegar ég var aðeins búin að lesa mér til um prógrammið þar og landið varð ég bara ÁSTFANGIN, held að þetta sé bara akkúrat landið fyrir mig. Svo sakar nú ekki hvað ég er ótrúlega heppin með fósturfjölskyldu, alveg yndislegt fólk! :)


 



Anna Maria og Ignazio
Fósturfjölskyldan mín samanstendur af þeim Ignazio(61'), Anna Maria(66'), Andrea(91') og Fabio(93'). Fabio verður í Kína sem skiptinema á meðan ég er hjá þeim, svo að ég veit ekki hvort að ég hitti hann eitthvað. Þau eiga líka hund, þannig að ég fæ að upplifa tvennt nýtt, bræður og gæludýr! 

Hér koma lýsingar á þeim eins og þau settu í umsóknina sína:

     Ignazio: Maður með opið hugardar, fyndinn, til staðar en strangur. Elskar mótorhjól, ferðalög og að taka þátt í starfsemi safnaðarins. Hann er manager hjá einhverju fyrirtæki skilst mér.

     Anna Maria: Félagslynd en ögn feimin. Lifir fyrir fjölskylduna. Vinnur við stjórnsýslustörf.
       
     Andrea: Félagslyndur, glaðvær og þrjóskur. Hefur áhuga á skátum, mótorhjólum og íþróttum. Hann er að læra eitthvað í sambandi við flugvélar.

     Fabio: Það kemur ekkert fram um hann nema það að hann verði í Kína, en þetta er hress strákur, algjör sjarmör sem æfir hip-hop dansa.

Fabio
Andrea
Hundurinn :))





Borgin sem ég mun búa í heitir Forlì. Þetta er höfuðborg héraðsins(province) Forlì-Cesena sem í búa 387,200 manns. Forlí er í Emilia-Romagna(region) og liggur hliðina á Via Emilia sem rómverskur vegur sem var fullbyggður 187 f.k. takk fyrir! Í borginni búa 116,864 manns. Þetta virðist vera rosalegafalleg borg og fullt af flottum byggingum þarna. :)




Forlí og Emilia-Romagna á korti

Porta Schiavonia.


San Mercuriale klaustrið