Wednesday, January 19, 2011

Breytingar

Elsku þið.
Ég vona að nýja árið leggist jafn vel í ykkur og það leggst í mig. 2011 verður frábært ár. Ég er stútfull af orku og allt er eitthvað svo frábært og spennandi þessa dagana þótt svo að það sé búin að vera leiðinda kuldi og blindaþoka í viku!
Ég er bý núna hjá Clöru, Mauricio og Carlottu og er búin að vera hjá þeim í tæpa viku. Og áður en þið missið ykkur, þá er það bara tímabundið, í 2-3 vikur á meðan hin fjölskyldan vinnur úr einhverjum vandamálum sín á milli. Ég hefði reyndar ekkert á móti því að búa bara hér, hef það endalaust gott. Clara og fjölskylda búa í stóru, fallegu húsi í fyrir utan smábæinn Coccolia (sem tilheyrir Ravenna og er því slatta frá Forlí), með tveimur hundum, tæru sveitalofti og hanagali á morgnanna. Eini gallinn er auðvitað öll ferðalög, ég vakna fyrir klukkan 6 á morgnanna og tek skólabíl til Forlí kl.7:15, sem stoppar blessunarlega fyrir framan skólann minn tuttugu mínútur í 8. Ég sem er svo vön að skoppa bara í skólann rétt fyrir 8! Það að geta ekki eytt deginum vafrandi um miðbæ Forlí er eitthvað sem ég sakna líka. En þegar ég er komin í betri rútinu og búin að læra almennilega á strætókerfið blessast þetta allt saman.

Restin af jólafríinu mínu leið ansi ljúflega með morgunskokki eftir stíginum bakvið almenningsgarðinn í Forlí, nú eða morgunmat á einhverju kaffihúsi með vel völdu fólki, og dögum eyddum á útimörkuðum eða í búðarölti í miðbænum.
Síðustu helgi frísins tók ég mig til og fór á Cervia með Önnu(Þýskaland), systur hennar og vinum á skauta og svo héldum við Anna í leit að sjónum, en ströndin hér er öll girt af því á sumrin borgar fólk fyrir að fara á hana, þvílík hneysa! En við fengum allavega sjólykt.
Um kvöldið fórum við Anna svo í bíó með Dheu(Indónesía) og Matildu, sem er stelpa frá Ástralíu hérna í tveggja mánuða prógrammi(ekki á vegum AFS). Við fórum á ítölska mynd sem heiti La belezza del somaro, og er í einu orði algjört bull en gefur samt nokkuð góða mynd af því hvernig ítalir eru. Mun svo sannarlega að kaupa hana á dvd og neyða svo alla heima til að horfa á hana með mér!
 Eftir myndina fórum við svo á lítið og kósý kaffihús/bar í Cesena sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Taktu bókabúðina úr Fríðu og Dýrið + gamalt bókasafn, hentu inn nokkrum borðum, kósý stólum og sófum og bar, bókalykt + kakó- og kaffilykt og hundruðum bóka og tímarita, og þú ert komin með stemminguna.
Þar gæddum við okkur á ljúffengu heitu súkkulaði, sem er svo þykkt að það minnir helst á kakósúpu í föstu formi, og spjölluðum fram á nótt. Ég gisti svo hjá Önnu í fallega, fallega húsinu hennar og daginn eftir fórum við með Danielu og Giödu á markað í Cesena áður en ég hélt heim á leið.
Síðasta laugardagskvöld horfði ég svo á Il Piccolo Nicolas E I Suoi Genitori, s.s. Le Petit Nicolas með Clöru og fjölskyldu. Sú mynd er orðin uppáhald, og ef þið hafið ekki séð hana drífið í því strax! Svo fór ég svo með Carlottu og vini hennar á einhvern bar/skemmtistað í Ravenna og þið getið ekki ímyndað ykkur nostalgíu-kastið sem að ég fékk þgar sum laganna komu, alltof miklar minningar frá söngkeppninni á AK og sumrinu! (Ps. allir statusar á facebook um hvað böll á Íslandi eru skemmtileg og hvað þið höfðuð það fokk gaman um helgina eru mjög óvelkomnir. Líka statusar um kjötsúpu, íslenskt nammi og pepsí max. Hafið það ógó leiðilegt þangað til í júlí). :-*

Það var auðveldara en ég hélt að byrja aftur í skólanum, að komast í rútinu. Frábært að sjá alla aftur og byrja að gera eitthvað af viti. Andrúmsloftið á heimilinu var samt orðið ansi stíft, svo að mér finnst rosalega gott að vera aðeins komin í sveitasæluna núna. Mér þykir rosalega vænt um fósturfjölskylduna mína, en ég er að reyna að njóta þess að vera hérna án allra áhyggja.
En aftur að skólanum. Mér gengur alveg æðislega, þó svo að ég vildi óska að ítalskan mín væri aðeins betri, saumavélaskrímslið á það stundum til að vera mannígt en allt annað gengur ljómandi vel. Í ensku þarf ég að sitja undir vitlausum framburð og þýðingum, og þarf oftar en ekki að bíta inn í kinnarnar til að þegja, en ég finn huggun í því að við erum allavega að lesa sonnetur Shakespeare. Í gær kynnti ég fyrir bekknum mínum sögu Íslands á 15.-18.öld á ítölsku og gekk líka ljómandi vel, þó að hálf-tyrkneski strákurinn hafi ekki verið að meta Tyrkjaránið og að að Tyrkir hefðu lengi vel verið réttdræpir á Íslandi. Í landafræði er ég að læra um Japan, og núna erum við að horfa á The Last Samurai, sem er auðvitað frábærlega valin mynd, enda óendanlega löng! Í næstu viku tek ég svo að mér enskukennslu í einskonar þemaviku-mótmælum í skólanum. Við sjáum til hvernig það fer.

Fyrirgefið bloggleysið, og myndaleysið. Ég er bara svo löt!
A presto.

Ykkar Eyrún.

"To be is to do"-Socrates

"To do is to be"-Sartre

"Do Be Do Be Do"-Sinatra

 

 

 

Monday, January 3, 2011

Nýtt ár

Áramótaávarp forsætisráðherra skiptinema

          Ég trúi varla að árið 2010 sé búið. Þetta ár er búið að vera frábært, lærdómsríkt, spennandi og umfram allt viðburðarríkasta, erfiðasta og um leið skemmtilegasta ár lífs míns. Ég er búin að prófa svo margt nýtt, gera svo margt sem að ég bjóst aldrei við að ég hefði kjark í og er búin að læra fullt, og ekki síst um mig sjálfa, Og núna er ég ekki bara að tala um dvölina á Ítalíu, heldur hefur allt árið verið yndislegt, og ég vil  þakka vinum og fjölskyldu fyrir yndislegan tíma og ég hlakka til að gera sumarið 2011 ennþá betra en sumarið 2010 (sem að mér finnst ansi verðugt verkefni!)

Áramótin voru frekar róleg, borðaði pasta um kvöldið og fór svo á diskó, horfði á flugeldasýninguna á torginu á miðnætti og var komin heim fyrir klukkan 3, þessir Ítalir! Spjallaði við liðið heima og vaknaði daginn eftir "rosalega seint" um hádegi, þegar sumir heima voru kannski að skríða upp í rúm.
Ég myndi hafa þetta lengra, en mér dettur ekkert í hug og ég er farin niður í bæ að fá mér morgunmat með skvísum, því auðvitað vaknar maður kl. 6 (lestist 5) í jólafríinu sínu!

Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það gamla.
Við sjáumst þá á þessu ári!

xoxo
Ykkar Eyrún sem mun svo sannarlega sofa út í júlí 2011!











































Thursday, December 30, 2010

Jólablogg II

Og svo fór allt til fjandans.
Yfir hádegismatnum á jóladag, sem var einmitt pasta, fóru fósturforeldrar mínir að rífast. Jólin ónýt og ég eyddi deginum í að horfa á True Blood upp í rúmi. Átti svo ánægjulegt skype-deit með fjölskyldunni heima, litlu stelpurnar mínar sungu fyrir mig jólalög og svo spiluðum við partý-alias, tæknin í dag! Fyrstu jólin heima þar sem að einhver annar en ég fær eitthvað af ostunum!
Annar í jólum var eins. Ég vaknaði vongóð um að þetta ég hefði kannski bara tekið þetta of nærri mér, enda alls ekki vön grátandi mömmum eða rifrildum foreldra, og var við það að opna hurðina á herberginu mínu þegar þau byrjuðu aftur að rífast. Frábært, þá næ ég allavega að klára seríurnar.
Ég á semsagt engar jólaminningar frá Ítalíu, og ég veit ekki hvernig ítölsk jól eru. Ekki spyrja mig hvað Ítalir borða á jólunum, því að ég hef ekki hugmynd. Ömurlegustu jól ævi minnar.

Fósturpabbi minn hvarf svo, og dagarnir sem liðu einstaklega vandræðalegir og ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga, hékk bara heima. Þann tuttugusta og áttunda komu svo loksins jólagjafirnar mínar frá mömmu og pabba, Brynju systur og fjölskyldu og Elínu, og gjafirnar til fósturfjölskyldunar. Svo kom fósturpabbi minn heim í gær, þá hafði hann farið til Sikileyjar til mömmu sinnar og pabba. Hvort það var ákveðið fyrirfram eða var útaf þessum deilum veit ég ekki, en þau láta eins og ekkert hafi gerst og allt sé í himnalagi. '
Ég borða víst of lítið, sef of lengi og þau halda að ég sé með heimþrá og líði ekki vel. Hvernig þeim dettur það í hug hef ég ekki hugmynd um. Hver væri ekki hoppandi um af gleði eftir svona jól?

Ég vona að þið kunnið að meta góðu, íslensku jólin með fjölskyldu og vinum.

193 dagar í Ísland.

Saturday, December 25, 2010

Jólablogg I

Gleðileg jól, kæru Íslendingar.
Hér sit ég í stóru kojunni minni um jólanótt, mamma og pabbi sofnuðu svo að við förum líklegast ekki í miðnæturmessu úr þessu. Pakkinn frá mömmu og pabba á Íslandi komst því miður ekki í tæka tíð, en póstmaðurinn hefur samt komið með rauða pakka handa mér á næstum því hverjum degi, og alltaf eru þeir jafn velkomin sjón.
Ég ákvað að nú væri jafn góður tími og hver annar til að opna íslensku pakkanna mína og blogga smá, fyrst að ég fann smá jólaskap og hátíðleik. Því sit ég hér með Diskóeyjuna í eyrunum(í Eyrúnum?) umkringd gjafapappír, og gjafirnar í ár voru aldeilis ekki af verri endanum. Takk stelpur, vi voglio bene.

Þorláksmessa var skrítinn dagur. Síðasti skóladagurinn, loksins komið jólafrí. Ég byrjaði á að fara í klippingu með mömmu, fékk loksins mína jólaklippingu. Þegar ég kom heim beið eftir mér fallegur og rauður pakki merktur Póstinum frá Ísfold minni, svo að dagurinn byrjaði aldeilis vel. Svo bráðnaði seinasti snjórinn, en það var spáð mikilli snjókomu daginn eftir, sjálfann Aðfangadag. Á meðan fjölskyldan mín á Íslandi hittist í Skötuboði heima borðaði ég harðfisk með bróður mínum og hundinum og horfði á Big Bang Theory, því að mamma nennti ekki að elda. Þó að skatan sé ekki í miklu uppáhaldi hjá mér er þetta skemmtileg hefð og ég held að ég geti ekki kvartað á næsta ári. Ég saknaði samt mest að fara ekki í kaupfélagið með pabba og kaupa inn fyrir jólin, alltaf rífandi jólastemming í Hyrnutorginu á Þorláksmessu.

Á Aðfangadag vaknaði ég seint(um kl. 10) og missti því að fara í jólainnkaup með mömmu. Ég fékk pasta í hádegismat, og eftir hann horfði ég á jóla-Simpson þátt með fjölskyldunni. Þegar klukkunna loksins sló 6 (það slóu samt engar klukkur, sem að mér þótti mjög sorglegt) var ég ein heima að horfa á True Blood. Bróðir minn með vinum sínum og foreldar mínir úti að labba með hundinn. Þegar þau komu heim opnuðum við nokkrar gjafir, og mikið fannst mér leiðilegt að hafa ekkert að af gefa þeim því að jólagjafirnar þeirra frá mér eru líklegast komnar til Kuala Lumpur ef ég þekki póstþjónustuna hérna rétt. Ég fékk úr, ótrúlega fallega eyrnalokka, bókina Il Piccolo Principe og rauðar nærbuxur (það boðar lukku að klæðast rauðum nærfötum á nýársnótt.) Eftir það talaði ég við fjölskylduna mína á Íslandi á skype, yndislegt að sjá þau og upplifa smá íslensk jól. Jólaskapið hefur nefnilega ekki verið mikið hjá mér, því að hér er svo lítið sem minnir á jólin. Snjórinn er bráðnaður, og það eru eiginlega engar skreytingar, hvorki í heimahúsum né í bænum. Það heyrast varla nein jólalög í útvarpinu og vantar hreinlega þennan jólaanda og hátíðleik sem ég vanalega finn dagana fyrir jól. En það að tala við litlu krúttin mín um hvað þau fengu í jólagjöf kippti því í lag, og ég held að það sé óhætt að segja að ég verði mikið jólabarn næstu jól. Ekkert jafnast á við íslensk jól. :)
       
Sætu pabbi og mamma á Íslandi :)


Og hér sit ég ennþá með þrist og smákökur frá tvennunni Elsu og Jovönu, hamingjusöm og þakklát fyrir góða vini og góðar fjölskyldur og þetta tækifæri sem ég hef fengið til að skoða heiminn og prófa nýja hluti. Guð mætti þó henda inn í Egils Malt og Appelsín, jólasnjó og hangikjöti.. just sayin'. :)

Gleðileg Jól - Buon Natale - Glædeleg Jul - Happy Christmas - Feliz Navidad


Vona að þið hafið það gott, og að þið borðið mikið og hlæjið meira
Baccione
xoxo

Eyrún


Wednesday, December 22, 2010

Þjóðarstolt

Ég er mikið búin að vera að pæla í þjóðarstolti undanfarið. Íslendingar vita auðvitað að Ísland er besta landið og að Íslendingar eru besta fólkið, og að sjálfsögðu er íslenska leiðin til að gera hlutina sú rétta. Vandamálið er bara að allar aðrar þjóðir heims eru það vitlausar að halda að þeirra leiðir, siður og venjur séu betri. Hvað er málið með það?

Ég á marga vini af erlendu bergi brotnu, sem eru útlendingar búsettir á Íslandi, og hef oftar einu sinni og oftar en hundrað sinnum heyrt þá segja hvað þessi þjóðrembingur í Íslendingum sé pirrandi, en er þjóðarstolt þeirra eitthvað minna? Stolt Íslendinganna fer allavega í taugarnar á þeim, og er það ekki vegna þess að þeim finnst þeirra heimaland og þeirra venjur og siðir betri en íslenskir, og íslendingar eru nú meiri fíflin að vita ekki að þeirra land er betra, enda veit hver heilvita manneskja það. Nákvæmlega eins og Íslendingunum.

Ítalir eru mjög stoltir af því að vera Ítalir. Þeir eru stoltir af því að því að tala ítölsku, búa á þessu sögufræga landi og þeir eru rosalega stoltir af menningu sinni. Og á meðan ég verð þeim ævinlega þakklát fyrir pítsur og pasta, og auðvitað falleg málverk og arkitektúr, þá eru þeir nú óskaplega vitlausir stundum. En það er bara vegna þess að ég er Íslendingur, og ég hef alist upp við það að læra að eitthvað sé réttara/betra en annað, ef ég væri ítölsk fyndist mér þetta líklegast allt saman gott og blessað, en hér er ég fussandi og sveiandi, hristandi höfuðið eða að hlæja mig máttlausa af afhæfum þessarar furðulegu þjóðar. En er það ekki bara í lagi? Mega hlutirnir ekki bara vera öðruvísi, og er ekki bara fínt að okkur finnist aðrar þjóðir svoldið skrítnar. Við getum þá hlegið að því seinna og jafnvel lært eitthvað gagnlegt, og svei mér, kannski er íslenska leiðin ekki best!

Er þjóðarstolt ekki bara að vera stoltur af uppruna sínum og samlöndum, og er það ekki bara í besta lagi? Þjóð sem fyndist t.d. Frakkland vera besta land í heimi, og myndi fylgja frönskum siðum og venjum vegna þess að þeim fyndist Frakkar einfaldlega gera hlutina rétt, væri nú ekki mikil þjóð! Þjóð án þjóðarstolts og stolts yfir venjum sínum og siðum er einfaldlega ekki þjóð.

Þannig að ég mun halda áfram að fussa yfir því þegar Ítalir segja að Kólumbus hafi fundið Ameríku, að þurfa að nota hárþurrku alltaf, að þeir eigi ekki ostaskerara og borði hamborgara án brauðs. En ég geri það án fordóma, því að það er allt í lagi að gera hlutina öðruvísi.. jafnvel þótt að ég viti vel að Leifur heppni fann Ameríku og að það fer illa með hárið að nota hárþurrku!



Ekki?

Sunday, December 19, 2010

Hundrað dagar!

Í dag er ég búin að vera á Ítalíu í 100 daga, það þýðir að það eru bara 204 eftir. Tíminn líður asnalega hratt. Með svona stutt í jólin var ég búin að búa mig undir heimþrá í dag, en í staðinn fékk ég bara hálsbólgu og kvef. Ég kvarta reyndar ekki, og ætla að nýta þennan morgunn í bloggskrif og íslenskt nammiát. Er búin að fá pakka frá mömmu og pabba, sem var meira en mánuð á leiðinni, og líka frá Ingu, Guðríði, Sólveigu og Margréti. Þessar elskur.

Ekki slæmt að eiga svona góða að


Desember er búin að líða mjög hratt og ánægjulega, með allkonar skemmtilegum frídögum og uppákomum. Ég skrapp með fósturforeldrum mínum til Cesenatico, sem er lítill, fallegur  bær við Adríahafið, fór til Cesena oftar en einu sinni og eyddi deginum með Dheu og Francisco að labba um í fallega miðbænum og smakka allskonar góðgæti sem er selt þar á básum. Fór á viólutónleika í ljótu kirkjunni með fósturpabba á guð-fyllti-maríu mey-heilögum-anda deginum, fagnaði þriggja mánaða dvöl á Ítalíu, gerði salami heima hjá Clöru með gömlum köllum og sætum strákum, fór svo í AFS partý í Cesenatico þar sem að Ísland vann í Hvaða-land-gerir-bestu-hamborgarana keppninni, þetta var auðvitað bara venjulegur, sveittur ostborgari borinn fram með McCain frönskum! Svo var dansað salsa fram undir morgunn og mikið hlegið. Daginn eftir fór ég með Dheu á fótboltaleik sem að Lorenzo var að dæma og eftir það hittum við hina skiptinemana og skoðuðum jólaskreytingarnar og jólamarkaðinn, og enduðum auðvitað inn á uppáhaldskaffihúsinu okkar með nutella-latte. Svo fékk fékk ég pakka frá bestu stelpunum mínum á Íslandi með fallegum bréfum og íslensku nammi. Ég elska þessar mellur, eins og vitur maður eitt sinn sagði.

Cesenatico


Maya mín

Jólamarkaður í Cesena


Þessi er nýji litli bróðir minn :)

Verðlaunahamborgari in the making


Fólkið mitt :)




Á Santa Lucia(Lúsíumessu) fór ég með fósturforeldrunum á jólamarkað í Forlí, sem er loksins búið að skreyta smá. Svo byrjaði loksins að snjóa fyrir tveimur dögum, og ég skrapp en og aftur til Cesena þótt að allar samgöngur væru í rugli, fór á McDonalds með Matildu, Francisco og Dheu, og tók svo Indónesíu og Hondúras í LÍS 103 (Leika í snjónum). Síðustu dagar hafa svo aðallega farið í að klára að kaupa jólagjafir og svara bréfum, sem ættu að koma til Íslands á svipuðum tíma og ég, ef ég þekki póstþjónustuna hérna rétt.

Ánægð með snjóinn

Annars gengur allt áfallalaust og auðveldlega fyrir sig. Skólinn einkennist af hlátursköstum og teiknidúlleríi. Ég er orðin helvíti góð í blakinu þótt að uppgjafirnar séu ekki mín sterkasta hlið, og í gær komst ég loksins í körfubolta með einhverjum peyjum. Allar jólaskemmtanir hafa fallið niður því að einhver kennari í skólanum dó, en í staðinn fór ég bara í tölvutíma og las bloggið hennar Tobbu Marínós eins og venjulega, vantar bara einn latte. Þannig ættu allir skóladagar að vera.

Þetta er styttra en venjulega, en þið fáið örugglega mörg krassandi blogg um jólahefðir ítala, en mér skilst að fiskur og pasta séu á matseðlinum, og pakkarnir opnaðir 25. desember, sem er auðvitað skandall út af fyrir sig.



Kossar og knús til ykkra, og ég læt fylgja með guilty-pleasure lagið mitt.

xoxo, ykkar Eyrún.