Og svo fór allt til fjandans.
Yfir hádegismatnum á jóladag, sem var einmitt pasta, fóru fósturforeldrar mínir að rífast. Jólin ónýt og ég eyddi deginum í að horfa á True Blood upp í rúmi. Átti svo ánægjulegt skype-deit með fjölskyldunni heima, litlu stelpurnar mínar sungu fyrir mig jólalög og svo spiluðum við partý-alias, tæknin í dag! Fyrstu jólin heima þar sem að einhver annar en ég fær eitthvað af ostunum!
Annar í jólum var eins. Ég vaknaði vongóð um að þetta ég hefði kannski bara tekið þetta of nærri mér, enda alls ekki vön grátandi mömmum eða rifrildum foreldra, og var við það að opna hurðina á herberginu mínu þegar þau byrjuðu aftur að rífast. Frábært, þá næ ég allavega að klára seríurnar.
Ég á semsagt engar jólaminningar frá Ítalíu, og ég veit ekki hvernig ítölsk jól eru. Ekki spyrja mig hvað Ítalir borða á jólunum, því að ég hef ekki hugmynd. Ömurlegustu jól ævi minnar.
Fósturpabbi minn hvarf svo, og dagarnir sem liðu einstaklega vandræðalegir og ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga, hékk bara heima. Þann tuttugusta og áttunda komu svo loksins jólagjafirnar mínar frá mömmu og pabba, Brynju systur og fjölskyldu og Elínu, og gjafirnar til fósturfjölskyldunar. Svo kom fósturpabbi minn heim í gær, þá hafði hann farið til Sikileyjar til mömmu sinnar og pabba. Hvort það var ákveðið fyrirfram eða var útaf þessum deilum veit ég ekki, en þau láta eins og ekkert hafi gerst og allt sé í himnalagi. '
Ég borða víst of lítið, sef of lengi og þau halda að ég sé með heimþrá og líði ekki vel. Hvernig þeim dettur það í hug hef ég ekki hugmynd um. Hver væri ekki hoppandi um af gleði eftir svona jól?
Ég vona að þið kunnið að meta góðu, íslensku jólin með fjölskyldu og vinum.
193 dagar í Ísland.
æii þetta er ekki nógu gott :/ lennti eimitt í svona jólum í fyrr og í hitti fyrra og þetta var svo engann veginn gaman sko :/ en vonandi verður allt í lagi hjá þeim :)
ReplyDeleteknús á þig sætust vertu sterk <3
Vá ömurlegt! Tala við mig á skype í dag Eyrún!
ReplyDeleteElska þig! ;*
Elsku Eyrún mín.
ReplyDeleteÞú manst samt eftir að þú mátt ekki loka þig inni í herbergi of mikið. Nú verður þú líka að vera dugleg að fara út að ganga í jólafríinu. Það er svo hressandi. Þarf ekki að viðra hundinn.
Þú mátt gjarnan setja fleiri myndir á vefinn handa mér að skoða. T.d. af húsinu sem þú býrð í og af nágrenninu. Líka af skólanum.
Vona að áramótin verði ánægjulegri hjá þér og fjölskyldunni.
Bless, þín mamma
Heyrðu ég mundi allt í einu - það er ekki nóg með að þú eigir að vera í rauðum nærum á morgun, heldur þarftu líka að passa þig á baðkerjum, eldavélum og gömlum mublum sem Ítalir henda út um gluggana á miðnætti! (Allavega er/var það svona sunnar á Ítalíu.) Horfði sjálf á True blood í fyrradag og skemmti mér vel. - Og já -hugsaðu þér hvað þú ert lánsöm að eiga foreldra sem rífast ekki á jólnum. Gleðilegt ár krúttið mitt.
ReplyDeleteÆj en óskemmtileg jól. Vona að allt eigi eftir að ganga vel hjá ykkur núna og að áramótin eigi eftir að vera betri! Þú átt svo líka pakka frá okkur í póstinum :)
ReplyDeleteElskan mín við erum allavega svo heppnar að við eigum heimsins bestu foreldra og þú átt frábæra fjölskyldu sem bíður spennt eftir þér hérna heima og fylgist með hverju skrefi sem þú tekur :)
ReplyDeleteEn þetta er mjög leiðinlegt að heyra og kannski er fjölskyldan á bömmer yfir því að hafa ekki geta staðið sig betur en þetta yfir hátíðirnar. En ég hef nú líka alltaf svolítið gaman af því hvað ítalir eru blóðheitir og tilfinningamir þó ég þekki það nú ekki beint perónulega eða vilji búa með þeim hehe (og þeir mættu þá frekar fara í hina áttina þ.e. öfga hamingjusamir á jólunum)
oooh var að fatta að ég gleymdi að fá mér rauð nærföt, ætlað svo að athuga hvort það myndi vika!!!
Sendi þér RISAknús og kossa ;*
Æj, en leiðinlegt að þetta skyldi hafa gerst á jólunum svo að þú hafir ekki upplifað ítölsk jól eins og þau eiga að vera! :(
ReplyDeleteEn vonandi verða áramótin skemmtilegri :)
Þú verður að vera dugleg að fara út og gera eitthvað skemmtilegt þó að það komi upp eitthvað vesen hjá fjölskyldunni eða eitthvað. Þetta er stuttur tími sem þú átt bara eftir að upplifa einu sinni, svo að þú verður að njóta þín vel!
Margir kossar og knús til þín frá mér :*
Leiðinlegt að jólin hafi farið svona :(
ReplyDeleteVona að áramótin verði betri!
Þetta fer allt í reynslubankann, bara mismunandi góðar reynslur.
Skemmtu þér vel í kvöld :D
eyrún! ég er algjörlega að meta hvað þú bloggar oft, finnst líka gaman að sjá hvað þú lætur mikið vaða - finnst pirrandi að sjá
ReplyDelete"svo kom vandamál hjá fjölskyldunni og þetta og þetta gerðist og eitt alveg ógeðslega stórt en ég má ekkert segja"
(þó að ég trúi því uppá sjálfa mig að gera eitthvað slíkt)
en ekki svekkja þig of mikið á þessu, eftir allt eru jólin svo lítill hluti af öllu þessu ævintýri :)
bestu kveðjur frá þýskalandi
Það er samt allt í lagi milli mín og fjölskyldunar, bara svekkjandi að missa af jólunum! Allt í góðu. :)
ReplyDeleteMamma, ég fór nú út með hundinn tvisvar á dag öll jólin.. fannst það nú bara ekki frásögufærandi.
Rakel, einmitt! Til hvers eru bloggin ef ekki til að láta allt flakka? Eða svona flest! Haha :)
Gleðilegt nýtt ár allar :) :*