Friday, September 17, 2010

Fyrstu dagarnir

Rosalega er ég dugleg!

Ég veit, ég veit. Þetta er rosalega leiðilegt, týpískt blogg. Lestu það samt. Ég vil líka helst fá komment frá ykkur, annars nenni ég þessu ekki. :)

13.september
    Ég vaknaði alveg hryllilega snemma, dauðþreytt, til að fara með fósturmömmu minni og Andrea, fósturbróður mínum eitthvað að þvælast. Ég held að fóstumamma mín hafi haldið að Ísland væri ekki í Evrópu, og ég þyrfti að hafa  Visa sem ég þarf náttúrulega ekki. Við fórum á einhverja skrifstofu þar sem að fullt af fólki frá Afríku var að fylla út eyðublöð, mér leið eins og ég væri frá Mars!! Það var lítil stelpa þarna sem benti á mig og “Angel, Angel!” Vandræðalegt...
    Við löbbuðum eitthvað um miðbæinn, sem er rosalega fallegur, hefði átt að taka myndavélina með. Það er allt út í mörkuðum þarna og alltof mikið fólk!  Fór svo með Andrea í Vodafone búð, og ætlaði að fá ítalskt símakort... ég skildi ekkert hvað þeir voru að segja, held eitthvað um að geta hringt til útlanda, en ég fékk allavea ekki símakort.
    Svo birtist fósturpabbi minn bara allt í einu, og við fórum í skólann sem ég verð í hérna. Hann heitir  ITAS G. Saffi,  Instituto Tecnico Per Geometri Leon Battista Alberti. Held mig við það fyrra.   Við töluðum við aðstoðarskólastjórann, held ég. Hún heitir Fransisca og hún og hinar konurnar voru alltaf að koma við hárið á mér og “Bella ragazza, bella ragazza!” og voru rosalega hrifnar af augunum í mér. Shit, hvað ég var samt stressuð fyrir að byrja í skólanum! Þetta er ekkert lítill skóli, og ég hef aldrei verið “nýji krakkinn” áður. Eftir að við vorum búin að tala við kennarana, og fá núll upplýsingar! Ég vissi ekki í hvaða bekk ég væri, hvað ég væri að læra, hvenær ég ætti að mæta og fékk enga stundatöflu! Skipulagið er ekki alveg að gera sig hérna, finnst mér.  Allavega, þá fórum við í annan skóla sem er hérna í sömu götu, og ég mun fara í ítölskutíma þar. Þar var bara leiðileg kelling sem sagði okkur að koma daginn eftir. Þannig að við fórum heim..
    Ég get ekki líst því hversu þreytt ég var þegar við komum heim. Heilinn á overdrive við að reyna að vinna úr ítölskunni og öllu þessu nýja sem ég er alltaf að sjá. Ítalir eru heldur ekkert lágværir og einhvernveginn er eins og heilinn vilji bara slökkva á sér þegar þetta verður of mikið. Svo var líka brjáluð rigning, þrumur og rok. Elsku gamla Ísland, einmitt svona kúra-undir-teppi-og-horfa-á-sjónvarpið-og-sofna-veður. Fabio, fósturbróðir minn, staðsettur í Kína sem skiptinemi, hringdi í gegnum skype og við spjölluðum. Hann virðist vera rosalega fínn strákur, talar líka góða ensku og er ótrúlega fyndinn! Hann sagði mér líka að fjölskyldan mín er upprunalega frá Sikiley, og ég ætti bara að loka eyrunum þegar mamma og pabbi væru að tala því að þau töluðu alltaf saman á mállýsku frá Sikiley, og ég yrði bara rugluð af því! Frábært segi ég nú bara. Þau tala enga ensku, og tala ekki einu sinni saman á Ítölsku! Mamma mia! Hlakka ótrúlega til að hitta Fabio, þegar hann kemur heim.. í júní eða eitthvað!!
    Seinnipartinn fór ég með fósturforeldrum mínum í moll í Forlí-...., sem er lítill bær fyrir utan Forlí. Ég sá engar búið sem ég kannaðist við, en nokkrar lofuðu góðu. Við fórum í búð sem heitir Bennet, og er svona eins og þeirra Hagkaup, bara MIKLU stærra. Það var án gríns hægt að kaupa allt þarna. Ávextirnir voru ótrúlega flottir, og mikið úrval. Í fiskborðinu voru fiskar í heilu lagi, og lifandi humar og krabbar. Svo fyrir aftan kjötborðið var bara maður að dunda sér við að saga í sundur beljuskrokk, WHAT UP?! 
    Svo dó ég og kom til himna.. eða ég hélt það, því að ostadeilin var to die for! Ostar á stærð við dekk, og úrvalið var rosalegt! Kvöldmaturinn þetta kvöldið var frekar skrítinn, skinka og reykt skinka sem var í laginu eins og beikon(konan í búðinni skar það fyrir okkur úr læri), tómatasalat frá Sikiley og mozarella ostur, sem lítur út eins og egg og ég er ekki alveg búin að ákveða hvort að mér þyki góður. Þetta var samt rosalega gott á bragðið, en skrítið að hugsa til þess að maður sé að borða álegg og salat með salt og pipar. Um kvöldið bjuggum við fósturmamma mín til Tiramísú, eða hún bjó það til og ég horfði á. Svo hringdi ég heim, bara pabbi var heima og hljóðið ekki í lagi. Samt rosalega gott að sjá hann. Laga hljóðið í myndavélinni mamma og pabbi!!

OG TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ SÓLVEIG, hugsaði billjón sinnum til þín í dag! <3

                                                       
14.september
    Í dag var fyrsti skóladagurinn minn. Ég vaknaði kl.7, dauðþreytt að venju. Anna Maria fylgdi mér í skólann, svo að ég rataði nú örugglega. Leiðin er nú ekki flókin og ég lagði hana á minnið í gær. Ég fékk samt að vita að ég er í 4 B, A. Bekkingur að eilífu samt! Ég er alltaf í sömu stofunni (allavega ennþá). Krakkarnir eru rosalega fínir og opnir. Ljóshærð stelpa sem heitir Sarah kynnti sig strax og settist hliðina á mér. Hryllilega fín stelpa. Fyrsti tími var stærðfræði, góð byrjun segi ég nú bara.. Þau eru að læra  nákvæmlega það sama og ég var að læra á síðustu önn og, kannski er algjör óþarfi að taka þetta fram, en.. ég mundi núll! Flestir krakkarnir í bekknum eru 18 ára, en það eru þónokkrir 17 ára. Svo kynntu krakkarnir sig, en ég man bara rosalega fá nöfn. Susanna, Anna, Frederica, Alda, Sarah og Simone eru einu stelpurnar sem ég man nafnið á og svo eru Nicola  og Dennis tveir af strákunum. Í frímínútunum fór ég með stelpunum út þar sem allir voru að reykja, og guð minn almáttugur, ég er risi hérna! Allavega miðað við stelpurnar. Strákarnir hérna eru samt ekkert til að kvarta yfir! Það komu svona milljón manns upp að mér og kynntu sig, en þessi nöfn fara inn um annað eyrað og út um hitt! Stelpurnar í bekknum buðu mér svo með sér á McDonald's daginn eftir þegar skólinn er búinn, en þá þarf ég akkúrat að fara í ítölskutíma. Ég hefði verið ótrúlega mikið til í að fara með þeim, til að komast inn í hópinn og svona. En það kemur allt saman, það eru allavega allir ótrúlega nice hérna og opnir.
    Nú er ég líka byrjuð að læra landafræði, kennarinn var rosalega skrítin kona með ótrúlegan áhuga á Íslandi. Hún lét mig koma upp á töflu(kalktöflu nota bene!) og teikna Ísland, hvar Reykjavík væri, hvar ég ætti heima og hvar ÖLL eldfjöllin væru! Ég merkti auðvitað inn Eyjafjallajökul og svona, og krassaði svo bara feita línu þar sem að flekaskilin eru. Þýskukennarinn (jább, er komin í þýsku líka) er ennþá skrítnari en landafræðikennarinn, og talar ágætis ensku. Hún lét mig setjast í kennarastólinn og svo áttu krakkarnir að spyrja mig spurninga um Ísland og um mig. Spurningarnar sem ég fékk frá strákunum voru hryllilega fyndnar, t.d. hvort að ég hefði komið í alvöru hús áður, hvort að það væru mörgæsir á Íslandi, hvort að það væri sól á Íslandi, þetta væri í fyrsta skipti sem ég væri á skóm en ekki skautum(wtf?), hvort ég ætti ísbjörn og hvort að mér líkaði verk Oscar Wilde. Þessir strákar eru algjörir kjánar, en þeir eru svo sætir að þeir komast upp með það hjá öllum. Nicola minnir svo mikið á Simme frá Falkenberg, bæði í útliti og persónuleika.
    Stelpurnar spurðu bara aftur og aftur hvort að ég ætti kærasta, og hvort að þetta væri alvöru hárliturinn minn. Það er alveg sama hversu litla og lélega ensku þær kunna, alltaf “boyfriend? You boyfriend?”. Þær virðast ekki hugsa um annað, þessar elskur! Annars líður mér svoldið eins og ég sé komin aftur í 7-8.bekk. Þau eru miklu barnalegri en krakkar a Íslandi, með rosaleg læti, alltaf að elta hvort annað og líka bara hvernig þau klæða sig. Peysur með einhverjum krúttlegum fígúrum eru greinilega málið hérna, og svo er Hello Kitty rosalega vinsæl. Skóladótið þeirra er líka út í hött! Bleik pennaveski, bleikar loðnar skóladagbækur og.. je minn! Þetta var samt rosalega góður dagur,  ég bjóst alls ekki við því að krakkarnir yrðu svona skemmtilegir opnir, þannig að gerið það fyrir mig, ef það er skiptinemi í skólanum.. verið góð við hann og takið hann með ykkur!
    Þegar skólinn var búinn beið fósturmamma mín eftir mér fyrir utan, erum við að tala um vandræðalegt haha, krakkarnir voru rosa krúttlegir og strákarnir kysstu mig allir bless á kinnina. Það vantar alveg svona herramenn á Ísland! Ekki bara eitthvað svona, heldur bjóðast þeir til að halda á töskunni manns, kaupa handa manni að drekka, halda hurðunum opnum fyrir mann og alla þessa litlu hluti. Ég sé ekki íslenska stráka fyrir mér að halda á töskunni manns! Skólinn var búinn hálf 1(pælið í því, ég er búin í skólanum áður en að þið farið í mat!)  en stundum er hann búinn hálf 2.
    Besti vinur Fabio, fósturbróður míns, Luca kom svo í heimsókn til að ná í eitthverjar teikningar sem Fabio á fyrir skólann og til að hitta mig. D-d-d-d-d-d-d! ég segi ekki meira. Hann er reyndar frekar lávaxinn eins og flestir hérna, er það eitthvað í vatninu? Hann borðaði hádegismat með fjölskyldunni og svo svo horfðum við á einhverja ítalska mynd saman. Hann er greinilega alveg heimavanur hérna, og fósturforeldrar mínir koma fram við hann eins og annan son. Luca og Fabio eru í einhverjum break dance hópi, held samt að þeir tveir séu einu talentarnir í honum. Miðað við myndböndin sem Luca sýndi mér.  Eftir að Luca var farinn fór ég með fóstumömmu minni niður í bæ að kaupa skóladót. Við keyptum samt engar bækur, bara reikningsbækur, skóladagbók(bleika!) og pennaveski. Mig vantar samt bækur, og blýpenna helst.. en kannski þarf að fá eitthvað á hreint um hvaða fögum ég verð í, áður en við kaupum bækur. Hringdi aftur heim, þá voru mamma og pabbi bæði heima.. en ekkert hljóð. Hvað er í gangi?

xoxo

7 comments:

  1. Ókey, awesome. Hljómar eins og þú eigir eftir að skemmta þér rosalega vel! Í sambandi við tungumálið... það kemur. Sérstaklega ef þú leggur þig fram. :) Skemmtu þér vel með ítölsku strákunum. ;)

    ReplyDelete
  2. Ég sakna þín svo :( En það er frábært að það sé svona gaman hjá þér elskan mín og að allir séu góðir við þig!

    Reynum að heyrast á Skype við tækifæri :)

    Elska þig endalaust,
    Inga

    ReplyDelete
  3. Æii hvað það er gaman að lesa bloggið þitt :D en vá sakna þín sjúklega mikið :c verður svo að setja inn myndir af þessu Dddddd dam gaurum maður :D
    Skemmtu þér ótrúlega vel þar til í næsta bloggi get ekki beðið eftir að lesa það :D

    Elska þig músin mín :*
    Anna Margrét :D

    ReplyDelete
  4. Loksins get ég farið að fylgjast með þér :D

    Ég sé að skólaskipulagið er svipað hjá þér og mér. Ég fékk enga stundatöflu eða upplýsingar um neitt. Oftast veit ég varla í hvaða tímum ég er ;)
    Það er gott að fólkið þarna er opið og gott, hjá mér var bara hlegið og svo farið strax aftur að læra. hehe ;)

    Skemmtu þér rosalega vel í kringum alla heitu gaurana. Nýttu öll tækifæri sem gefast, en farðu samt varlega ;)
    Vertu svo dugleg að blogga svo að ég hafi nú einhvað að gera ;)

    Við hittumst svo geðveikt tanaðar með hvítt hár á næsta ári. Við verðum EKTA skinkur, ekki gerfi neitt ;)

    ReplyDelete
  5. Alvöru herramenn þessir Ítalir! :)
    BLEIKAR DAGBÆKUR OG HELLO KITTY HAHAHA! Fórstu nokkuð aftur í tímann?

    Kossar og knús frá Íslandi :*

    ReplyDelete
  6. TAKK FYRIR KVEÐJUNA ELSKAN :D <3 Mér líst nú ansi vel á þessa ítölsku pilta! Kemuru ekki bara með einn til mín þegar þú kemur heim :):):) hehe. En gaman að heyra hvað það er gaman hjá þér! Og OSTADEKK?!? það er sko eitthvað fyrir þig! En skemmtu þér rooosalega vel og hafðu það gott elsku Eyrún :* og keep on blogging!

    Sólveig

    ReplyDelete
  7. Elska ykkur stelpur mínar, og já Eva við sjáumst sko vel tanaðar og glærhærðar á næsta ári! :D

    En þið hinar, þið leggið bara inn pöntun hjá mér um hæð, augnlit og vöðvamassa og tanmag. Eg kem bara með þá heim í gámi ;)

    Verið svo duglegar að lesa hjá mér og tala á skype! <3

    ReplyDelete