Nú þarf ég bara að byrja að æfa eitthvað, er samt ekki búin að finna neitt sem mér líst á en það er almennningsgarður á móti mér sem ég gæti vel hugsað mér að fara út að skokka í. Það rennur líka rosalega falleg á fyrir aftan hann, og þar er líka stígur. Fer þangað við tækifæri og tek myndir, ég er alltof löt við það!
Í gær (22. sept) hitti ég Carlottu, sem er trúnaðarmaðurinn minn. Hún er 19 ára og var skiptinemi á Íslandi fyrir tveimur árum. Hún talar fína íslensku, og mikið óskaplega var GOTT að tala íslensku aftur. Ég lendi stundum í því að byrja að tala íslensku við krakkana í bekknum, sem veldur rosalegum hlátursköstum, Dennis sem er besti strákavinur minn í bekknum, lá án gríns í gólfinu í dag grátandi úr hlátri í miðjum þýskutíma því að ég var búin að vera að blaðra fult við hann á íslensku, án þess að fatta að hann skyldi auðvitað ekki orð. Sem var frekar vandræðalegt.. en mjög fyndið.
Við Carlotta fórum og keyptum okkur gelato, reyndar fékk ég mér fro-yo sem var hryllilega gott og svo löbbuðum við aðeins um Forlí, hún sýndi mér skemmtilegar búðir og staði og við spjölluðum saman um alls konar hluti sem tengjast því að vera skiptinemi.
Eftir skóla í dag fór ég svo með fósturmömmu minni til Cesena, sem er næsta borg við Forlí. Í Cesena fer ég á Ítölskunámskeið með hinum skiptinemunum á svæðinu, fyrsti tíminn var í dag og við vorum aðallega að kynna okkur og læra hvernig stafirnir eru bornir fram á ítölsku. Pretty much eins og í íslensku með nokkrum undantekningum. Það var rosalega gaman að hitta hina krakkana aftur og tala við þau um allt hérna enda eru þau í nákvæmlega sömu sporum og ég og vita alveg hvað ég er að upplifa. Ég hef það samt mjög gott, Stelpa frá Kólumbíu sem heitir Daniela var sett í 1. bekk ss. með krökkum sem eru 14 ára og krakkarnir í Cesena hanga aðalega með hvort öðru og hafa ekki kynnst mörgum ítölskum krökkum. Svo er strákur frá Panama hérna rétt hjá sem er í skóla þar sem að krakkarnir eru eiginlega bara vondir við hann, þau hundsa hann alveg og labba bara í burtu þegar hann reynir að tala við þau!
Ítalía er samt svo miklu ólíkari Íslandi en ég bjóst nokkurntímann við, í frönskutíma tók ég saman nokkra punkta sem ég ætla að skella hérna inn, gleymdi pottþétt einhverju en það kemur þá bara inn seinna:
- Ítalir eru í skónum inni - Í rauninni alltaf í skónum nema rétt á meðan þau eru í sturtu eða sofa.
- Þau nota handklæði ekki til að þurrka sér eftir sturtu heldur fara þau í náttsloppa, en nota reyndar handklæði um hárið. - Allir þurrka á sér hárið með hárþurrku hér.
- Stelpurnar hér hugsa mjög mikið um útlitið. Augnskuggar í allskonar litum, litríkar spennur og gloss, - en enginn maskari.
- Fólk snýtir sér alveg óhikað fyrir framan aðra - í búðinni, í skólanum á meðan kennarinn er að tala ( í dag snýtti Nicola, bekkjabróðir minn, jólalag á meðan þýskukennarinn las upp. Basic.)
- Allir eru ROSALEGA háværir hérna. Krakkarnir hafa rosalega hátt í tímum og kennararnir öskra bara en hærra til að yfirgnæfa lætin (sem tekst ekki).
- Það myndast algjört umferðaröngþveiti á hverjum degi eftir skóla, allir klára á sama tíma og gatan er troðfull af fólki, bílum, vespum og strætóum. Merkilegt að það sé ekki dauðsfall eða bílslys á hverjum degi!
- Krossarar og keppnismótorhjól eru fullkomnlega eðlileg ökutæki fyrir nemendur á aldrinum 14-18 ára.
- Umferðin er stórhættuleg, það er ekkert skipulag á henni(ekkert sem ég tek eftir). Allir keyra rosalega hratt og það er mikið um nauðhemlanir.
- Það er fullkomnlega eðlilegt að leggja langsum í bílastæði - reyndar geturu lagt allstaðar svo lengi sem að einn bíll nær að troða sér framhjá þér.
- Það er mjög mikið af einstefnugötum og þess vegna tekur oft mun lengri tíma að keyra eitthvert en að labba það.
- Allir reykja! - Allavega allir unglingar. Og þau reykja á skólalóðinni, réttara sagt hliðina á íþróttavellinum á skólalóðinni! Jedúddamía.
- Mjólkin er ekki geymd í kæli fyrr en það er búið að opna hana - Hryllingur að lenda á því að þurfa að opna nýja fernu út á morgunkornið!
- Þau sofa ekki með sæng, heldur með þunnar ábreiður og teppi - Brrrrrrrrrr...
- Það er veggjakrot ALLSTAÐAR, - á lestum, húsum, veggjunum í skólastofunni. Nefndu það.
xoxo
EYRÚN!!!
ReplyDeleteÞetta er land Pizzunar, þú getur gerst bakari.
Eða þú getur orðið söngvari :):):)
Allir reykja! - Allavega allir unglingar. Og þau reykja á skólalóðinni, réttara sagt hliðina á íþróttavellinum á skólalóðinni! Jedúddamía.
Agga mundi líka það haha
Gaman að frétta af þér Eyrún mín. Gaman að lesa um hvernig Ítalir koma þér fyrir sjónir.
ReplyDeleteGlöggt er gests augað segir máltækið. :-)
ma
Sæl Eyrún
ReplyDeleteRakst á bloggið þitt alveg óvart - á eina frænku sem skiptinema í Ekvador - var að lesa hennar blogg og ýtti þarna á nokkra takka :) og var komin inn á þína síðu...
en erindið var að segja þér að það er skemmtilegt að lesa bloggið þitt -
þetta er svo ljóslifandi blogg...
langar til að fá að fylgjast með þér ef ég má;)
gangi þér vel á Ítalíu
kær kveðja
Guðrún samlandi þinn ;)
ps. já sammála þér með ísinn..æði;)
Aww það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa bloggið þitt eyrún mín :*
ReplyDeleteHanna, já Aggi myndi líklega njóta sín hér haha!
ReplyDeleteGuðrún, þér er endilega velkomið að fylgjast með, og takk fyrir! :)
Anna mín, svo lengi sem þú heldur áframað commenta svona yndislega held ég áfram að blogga! :*
frábært blogg hjá þér eyrún! :D en whaat nota stelpurnar ekki maskara o.o það er eiginlega eina sem stelpur nota hér í skólanum haha :')
ReplyDelete-alda valentína :)