NÝTT - NÝTT - NÝTT
Nú er ég búin að vera heila viku í Forlí. Mér finnst ég samt hafa verið hérna mikið lengur. Það er svo mikið búið að gerast, og svo margt sem ég er búin að upplifa, hálf ómögulegt að þetta geti allt saman gerst á 7 dögum. Ég er komin í nýtt land, nýja borg, nýja fjölskyldu, nýtt tungumál, nýjar venjur, nýjan skóla, nýja vini, nýtt allt!
Skólinn gengur ótrúlega vel, þó að ég skilji varla neitt. Krakkarnir eru frábærir, minna mig svoldið á gamla grunnskólabekkinn minn í Borgarnesi, svo rosalega hávær og elskuleg en undir öllum þessum elskulegheitum er greinilega stórt dramamál, sem ég á aðeins eftir að komast til botns í. Þetta er alveg eins og í grunnskóla, kvennaveldi í bekknum; 21 stelpa og 5 strákar, hvorki meira né minna. Stelpurnar eru rosalega duglegar að draga mig með sér, og hjálpa mér með allt mögulegt frá því að sjá glósurnar þeirra og stærðfræðiheimanámið, eða sjá til þess að ég sé ekki örugglega með íþróttaföt og að ég fái örugglega nóg að borða. Þessar elskur eru alveg búnar að taka mig inn í hópinn - svo er bara að vona að þetta haldist út. Ég verð náttúrulega að vera dugleg að læra ítölskuna, og að troða mér inn í hópinn, því að oft er þetta bara fyrstu vikurnar á meðan ég er ný og spennandi.
En fyrst að ég er að tala/skrifa um skólann, þá er skólinn hérna allt öðruvísi en skólinn heima. Krakkarnir hér eru eins og villidýr þegar bjallan hringir. Það verður allt brjálað, án nokkurs gríns þá fyllist gangurinn og það er örtröð út um dyrnar. Tek mynd af þessu handa ykkur bráðum. Þetta er eins og að lenda inn í miðri hjörð af gnýjum úr Konungur Ljónanna.
Í gær(laugardag) fór ég með fósturforeldrum mínum til Ravenna(?) í moll þar. Ég keypti reyndar ekki neitt en kom auga á NewYorker og H&M, ennþá 10 mánuðir til að eyða pening og ekkert liggur á. (Mamma og pabbi, það væri ágætt ef þið mynduð vinna stórann vinning í lottóinu bráðlega og leggja hann inn á mig.) Ég var svo umkring(án gríns) af hóp af "ragazzi" eða gaurum sem böbbluðu endalaust á ítölsku við mig, áður en ég náði að forða mér í burtu. Það var eiginlega meira ógnvekjandi en nokkuð annað. Um kvöldið fór ég svo heim til Frederiku bekkjarsystur minnar, og horfði á mynd með henni og tveimur vinkonum hennar, Carlottu og Olgu. Þær eru svoddan 'poshy-tosh'. Frederika er rosalega sæt og yndisleg stelpa, og ég er eiginlega búin að vera mest með henni, fyrir utan Betty og Susönnu. Þetta drama sem ég talaði um áðan beinist samt held ég gegn henni. Sarah, Mila og Anna buðust allavega allar til að skipta um sæti við mig, svo að ég þyrfti ekki að tala við hana í skólanum, hvað er í gangi?
Mér dettur samt ekki í hug að loka á Frederiku, því að þegar maður er í þessum aðstæðum, að tala ekki tungumálið og vera í nýjum skóla ætti maður bara að taka því sem býðst og auk þess líkar mér líka vel við hana. Mér finnst líka mun líklegra að vináttan við Frederiku sé varanleg, og að Sarah og Mila fengu leið á mér eftir nokkrar vikur. Þannig að ráð fyrir framtíðar-skiptinemar; Verið vinir þeirra sem vilja vera vinir ykkar. Blandið ykkur samt ekki inn í deilur innan bekkjarins og reynið að vera hlutlaus í þannig málum. - Drama er ekki bara á Íslandi. ;)
Annars gengur ítalskan mjög vel, ég læri alltaf nokkur orð á dag og er byrjuð að geta tjáð mínar basic þarfir við fjölskylduna og svarað einföldum spurningum, og svo skil alveg fullt. Ég ætla samt að koma mér upp einhverju plani, glósa ákveðið mörg orð á dag og lesa 1-2 bls. í ítalskri bók, auk þess að læra smá málfræði.
Buona notte elskurnar
xoxo
Pabbi þinn kaupir lottómiða á hverjum laugardegi þannig að miði er möguleiki, er það ekki? :-)
ReplyDeleteBuona notte elsku Eyrún.
Ma og pa
Æðislega gaman að heyra hvað allt gengur vel elsku Eyrún
ReplyDeleteErtu ekki pottó með skype?
ooog hvar eru myndir?
Hmm, þú verður að passa þig að allir strákarnir verði ekki skotnir í þér. Þá hætta hinar stelpurnar að vilja tala við þig...
ReplyDeleteGaman að geta lesið svona spennandi sögur um dagana þína í Ítaliu :)
ReplyDeleteEr bekkurinn þarna verri en okkar bekkur? gætum notað það sem afsökun :p
Finnst þér líka ekki skrítið hvað Ítalar leggja mikla áherslu á R í orðum?
Kv MDan
Drífið þá í að vinna, mamma mín :-*
ReplyDeleteSigrún, skypeið er eyrun.baldursdottir og myndirnar eru á facebook. :)
Og jú Mdan, þau eru sko MIKLU háværari en við! Og,jú þau leggja ótrúlega mikla áherslu á R-in, og lengja öll orðin rosalega, hanga alveg í hverju atkvæði haha. :)
Haha fyndið hvað stelpur eru eins um allan heim :) Meiri fíflin..
ReplyDeleteNjóttu hvers dags :-*
Inga
gott að allt gegnur vel;)
ReplyDeleteer ekki alveg að trúa að þessir krakkar eru háværarari en við?.. soldið erfitt heh:)
ást á þig ;*
Margrét
Æj Margrét, þetta er ábyggilega og í kringum kvöldmatartímann heima hjá þér.. þegar þú ert ein heima.
ReplyDeleteNei án gríns, þau eru eins og 100 þú, og kennararnir öskra í staðinn fyrir að tala!
Elsk á ykkur stelpur :) :*
hahah ég hló nokkrumsinnum upphátt við að lesa þetta :$ .. eins gott fyrir þig að þú sérst að skemmta þér þarna úti :D - ef þú átt ekki vini þarna úti, þá er eitthvað að því þú ert svo æðisleg :*
ReplyDeleteþað er samt mjööög erfitt að toppa okkur í hávaða ehehe 8-)
elska þig :) <3
Elsa Hrönn