Halló elsku Ísland. :)
| Fæ alltaf svo fallega kvöldsól, eins og mamma er svo hrifin af. :) |
Faenza er rosalega fallegur bær, væri alveg til í að fara þangað aftur. Ég hitti nonnu (ömmu) hennar Frederiku, uppáhalds frænku hennar og litla frænda hennar sem er 14 ára körfuboltastrákur, tókum einn one-on-one, hann vann reyndar.. enda svona 1,90 m á hæð! svo fórum við Frederika í miðbæinn, skoðuðum í búðarglugga og hittum svo frænkuna í snyrtivörubúð, Frederiku vantaði hjálp við að finna eitthvað til að nota í vetur svo að hún liti ekki út fyrir að vera föl, en henni finnst hún alltaf verða svo föl á veturna. Eftir að ég hafði beðið í hálftíma, búin að kaupa mér meik og púður og skoða öll dýra gucci, dolce&gabbana, prada, valentino og dior ilmvötnin fundu hún og búðarkonan(sem var búin að vera að hjálpa henni allan tímann) hina fullkomnu lausn á vandamálinu, sólarpúður!
Ég get nú ekki sagt annað en að ég hafi verið orðin svoldið pirruð á biðinni, en þegar Frederika sýndi mér þessa töfravöru sem hún hafði keypt skellihló ég og gleymdi öllum pirring! Þessar elskur..
| Faenza, ekkert smá fallegur bær. Hefði átt að taka fleiri myndir. |
![]() |
| Áður en ég kem heim ætla ég að kaupa mér eitthvað svona dýrt og yndislegt :) |
Svo var pítsa í kvöldmatinn, og ég borðaði-næstum-því-heila-pítsu-alveg-ein! Haha, þannig er þetta hér. Ein pítsa á mann. Þær eru líka miklu þynnri en þessar sem maður er vanur heima, rosalega góðar en mér finnst nú samt pabba pítsur bestar. =) Ég fór svo með Andrea, bróður mínum og vinum hans, Luca (það heita allir annað hvort Luca eða Fabio hérna), Michele og Manuel á rúntinn(þau rúnta hérna líka!) og svo til Cesena á Teatro Verdi, sem er rosalega flottur skemmtistaður þar. Það er víst rosalega erfitt að komast þarna inn, en við komust strax inn, þurfum ekki einu sinni að fara í röðina! Hitti svo enga aðra en Frederiku og Carolinu vinkonu hennar þarna inni, en var samt aðallega með strákunum. Dj-inn sem var að spila, einhver rosalega vinsæll hérna segir Andrea, var hrikalega hallærislegur að mínu mati, alltaf að segja "This is Miami, bitch" og þá meina ég alltaf! Svo söng hann alltaf með lögunum.. og tókst einhvernveginn alltaf að fara vitlaust með textann. Þetta var samt rosalega gaman, Andrea og Luca tóku það að sér að vera persónulegir lífverðir mínir, örugglega að skipun fósturpabba míns haha. Það er stundum svoldið erfitt að vera eina ljóshærða manneskjan á staðnum.. Hvernig hefði þetta verið ef maður hefði farið eitthvert meira framandi? Kannski hagar fólk sér betur þar en strákar á Ítalíu gera.
Við komum rosalega seint heim, um hálf 6 leitið, þá fengum við okkur bara cocoa puffs og svo að sofa. Til kl. 10.. það er ekki sofið út hérna, eins og heima. Ég er víst dormigliona, eða svefnpurrka, samkvæmt fósturpabba míns, foreldrar mínir verða nú bara hissa ef ég er vöknuð kl. 10 á sunnudögum! Sunnudagurinn var bara tanning session með Mayu minni, og svo um kvöldið var ég orðin frekar slöpp, kvefuð með hausverk og hálsbólgu. En ég fékk fisk að borða! Mikið ótrúlega var ég glöð.. þegar ég kem heim, nenniði þá að elda soðinn fisk og kartöflur, plokkfisk og lax handa mér mamma og pabbi? Og eiga fullt af harðfisk.. og túnfisk, og sardínum. Ég sakna þess að borða fisk! Ég prufaði líka að borða kaktus! - Eða það sem er inn í honum, það var rosalega gott. Fjölskyldan mín er frá Sikiley, og þetta er víst tipicale siciliano. Það eru allir réttir hérna dæmigerðir fyrir einhvern stað hérna, eins og tildæmis Spaghetti Bolognese, er þá réttur frá Bologna.
Í dag, mánudag, eru ég og fósturmamma bara búnar að liggja heima, báðar veikar. Hún vakti mig kl. 9 til að fara með mig til læknis, sem mér fannst nú fullmikið af því góða. Að fara til læknis út af smá flensu? Heimilislæknirinn þeirra, eða dottoressan var rosalega næs, þá loksins sem við komumst að.. áttum pantaðan tíma kl. 10 en komust loksins að kl. rúmlega 11 vegna þess að það var alltaf eitthvað gamalt fólk að ryðjast fram fyrir okkur "því að það var eldra" og þetta þótti bara allt í lagi! Gat það ekki beðið 15 mínútur lengur til að tala um sitt harðlífi á meðan ég fékk lyfseðil fyrir einhverjum hálstölfum, lyfseðil fyrir hálstöflum! Annars eru þau alveg búin að dekra við mig í dag, Andrea fór og keypti McDonalds handa okkur í hádegismat (ég féll á gosbindindinu) og keypti ís og allt, þessi dúlla. Svo er fósturpabbi minn búinn að hringja svona 10 sinnum heim úr vinnunni til að spyrja hvernig mér líður, mér finnst þau nú gera full mikið úr þessu en rosalega krúttlegt. :) En nú er þetta orðið alveg nóg í bili, ætla að skella nokkrum myndum með inn. :)
Svo verðið þið að vera dugleg að commenta, mér finnst svo gaman að lesa þau. Það þýðir ekkert að vera rosalega dugleg fyrst og hætta því svo! :)
![]() |
| MMMMMM |
| Fede sæta :) |
Til hamingju með afmælin ykkar elsku Inga Björk og Anna Margrét, hafið það ótrúlega gott og vonandi fenguð þið ykkur köku úr Geirabakarí :*
What would life be if we had no courage to attempt anything?
- Van Gogh
xoxo, GOSSIP GIRL nei okey.. bara Eyrún :)
xoxo, GOSSIP GIRL nei okey.. bara Eyrún :)


aww takk elskan :* heyrðu nei ég fékk mér ekki köku í geira :C en ég fékk köku ala mamma :P en vá hvað ég öfunda þig mc donalds franskar <3 omn omn vonandi borðaru líka fyrir mig af þeim :* en eins og ég segji alltaf..... alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt :*
ReplyDeleteLöv ja Anna Margrét :D
Neiii almáttugur!! ég er hætt við að lesa bloggið þitt ég er græna af öfund hérna :)tjaa nema með veikindin en þér batnar nú vonandi fljótt svo famelían láti ekki leggja þig inn á spítala... en auðvita frábært að þau hugsi svona voða vel um íslensku prinsessuna sína :)
ReplyDeleteHeld þú sért líka að gleyma því að útivistartími fyrir ungar íslenskar og ljóshærðar skvísur er til kl. tólf á miðnætti skv. 16. gr. útivistarlaga á Ítalíu alveg satt!! hehe
Þúsund kossar til þín elsku Eyrún :*
Mmmm McDonalds.. namm! En vá maður hvað þetta hljómar allt svo vel! Og gott að heyra hvað fólkið fer nú vel með þig haha :D
ReplyDeleteEn vertu svo áfram svona dugleg að blogga! Ég er ánægð með þig stúlka!
En hafðu það nú gott elsku Eyrún mín, ég vona að þér batni... oooog.... kysstu sæta stráka! :*
Sólveig :*
Frábært að heyra hvað það er gaman hjá þér og hvað fjölskyldan er góð við þig :)
ReplyDeleteHaltu áfram að njóta þín og hafa það gott!
P.s Láttu þér batna fljótt elskan :*
elsku elsku eyrún, me misses you meira en allt!
ReplyDeleteþað er svooo mikið eftir en samt hljómar þetta svo vel, ítalarnir eru að gera rétt með því að þjóna þér!
en leiðinlegt samt með veikindin :/
vona að þetta fari að skána, ég trúi nú ekki öðru!
ætlaði líka bara að segja að það er ótrúlega gaman að lesa bloggin þín, eitthvað til að hlægja að svona ekta ekta eyrún!
takk fyrir að láta vita af þér
ísfold (=
elska þig eyrún! <3 ;*
dugleg að blogga Eýrnun mín gott að það er gaman og nóg af göördjöös strákum :)
ReplyDeleteláttu þér batna ;*
-Margrét
Ah á maður að missa sig af öfund stelpa ;o
ReplyDeleteég kem svo bara í heimsókn bráðum :D
haha en láttu þér batna sæta mín og skemmtu þér æðislega vel fyrir mig
og muna eftir veiðistönginni ! <3
-elínósk :*
hahah ég lolaði yfir xoxo gossip girl!!!
ReplyDeleteen mæli með í veikindum: horfa á allt friends og taka alltaf klappið:D:D
-hannadóra
Thank You and I have a neat offer you: How Much Are House Renovations Stardew Valley renovations to increase home value
ReplyDelete