Wednesday, October 20, 2010

5 week orientation - "An excape from reality"

Halló, halló, halló.

Nú er ég komin heim eftir að hafa eytt langri helgi (14.-17.október) í Jesi með hinum skiptinemunum á mínu svæði í 5-week-orientation. Þetta er í rauninni bara að sleppa aðeins frá raunveruleikanum hérna, kynnast hinum skiptinemunum og tala saman um vandamál sem hafa komið upp og reyna að lesa þau. Ég er svo ánægð með fjölskylduna mína að ég skammast mín næstum því!
  • Daniela, stelpan frá Kólumbíu hefur það sko ekki gott. Hún býr ein með host mömmu sinni og þeim kemur alls ekki vel saman, mamman gefur henni gamlan mat að borða(ef þið hefðuð séð myndina af 3 daga gömlu eggjunum..) og er bara leiðileg við hana!
  • Andrea frá Hondúras er líka í veseni með fjölskyldu. Henni og pabbanum kemur ekki vel saman og host foreldrar hennar sögðu henni að hún ætti við andleg vandamál að stríða vegna þess að hún væri alin upp af einstæðri móður! Hvað er að?
Svo eru fleiri að skipta um fjölskyldur, en ég man ekki hversvegna. Ótrúlega sorglegt, og mér finnst ég svo ótrúlega heppin!

Það var ótrúlega gaman, og gott að hitta hina skiptinemana og tala við þau því að við erum öll að ganga í gegnum það sama. Svo var líka gott að komast aðeins í burtu frá öllu, það var bara svoldill skólaferðalagsfílingur í þessari ferð og maður gleymdi því alveg að maður væri á Ítalíu í 10 mánuði. Við vorum á krúttlegu, litlu hóteli í Jesi. Ég var í herbergi með Dheu(Indónesía) og Önnu(Þýskaland) sem búa báðar í Cesena og ég þekki vel. Svo voru líka Charlotte(California) og Myrthe(Belgía) með okkur í herbergi. Ég hitti Charlotte í Róm og við höfðum spjallað aðeins, en Myrthe(þetta actually sama nafn og Moaning Myrtle) er bara hérna í 3 mánuði og ég hafði aldrei hitt hana áður. Þe, tta var sannkallað ólukkuherbergi, baðherbergið var alltaf allt á floti útaf sturtunni, það var ískalt en svo var bara allt í einu skrúfað frá hitanum þannig að fötin okkar á ofninum brunnu. Ég slapp samt frekar vel, bara smá á hvíta hlýrabolnum mínum og svo kom sápa í næstum öll fötin mín.. týpískt!
Merkilegt samt hvað maður smellur saman við aðra skiptinema, það þarf bara nokkrar mínútur og þá er maður orðinn besti vinur manneskju sem maður getur ekki einu sinni borið fram nafnið á! - Tengist því líklega að við erum öll í sömu sporum, og þjöppum okkur saman í hóp svona til að finnast við örugg.

Námskeiðið sjálft var nú ekki neitt hryllilega spennandi, bara verið að spyrja okkur út í hvernig okkur liði hjá fjölskyldunum og í skólanum. Gerðum allskonar lítil verkefni, eins og hvað okkur þætti skrítið/slæmt/gott/fyndið við lífið á Ítalíu, hvað við vissum um lönd hinna skiptinemanna, og hvernig við myndum bregðast við/hvað okkur finnst um ýmsilegt, t.d. að strákur og stelpa séu ein saman í herbergi, taka langar sturtur, hvað vinátta er og ýmislegt. Svörin voru fjölbreyttari en ykkur grunar, - og svona dóterí um "heiður fjölskyldunnar" er alls ekki eitthvað frá 17.öld. Stelpurnar frá Asíu mega ekki vera einar í herbergi með strákur í heimalandi sínu, maður getur jafnvel farið í fangelsi fyrir það og samfélagið lítur allt niður til manns, enda gæti eitthvað ósiðsamlegt hafa farið fram! Strákurinn frá Kína var líka illa heilaþveginn. Hann reyndi að telja okkur trú um að Dalai Lama væri hryðjuverkamaður og að mestallur hluti asíu tilheyrði í rauninni Kína. Kommúnismi er eina leiðin, og hann varð mjög reiður þegar við spurðum hann út í það hvernig honum fyndist að að ríkistjórnin stjórnaði því sem að hann sæi á netinu. (Kínverjar þurfa að fara í gegnum sérstakt ferli til að fá facebook, og þau sjá aðeins valdar síður á netinu. s.s. ekki neitt um hversu heilaþvegin þau eru og það sem að ríkið vill ekki að þau sjái).

Krakkarnir voru samt æði, og alltaf mikið fjör. Allir voru frábærir vinir og ég gæti hugsað mér að eyða öllum mínum tíma með þeim, oh hvað ég vildi að við gætum bara alltaf verið saman! Bondaði alveg sérstaklega vel við stelpu frá Finnlandi sem heitir Ilona, við sóttum svoldið í hvor aðra og mér fannst ég strax vera nær Íslandi með henni. Elsku skandinavíska fólk! Ætli að það sé ekki svona, skiptinemar sækja í skiptinema, og norðurlandabúar í norðurlandabúa! Ég sá líka þegar við vorum í hvernig mynduru bregðast við/hvað finnst þér um-verkefninu hvað Ísland og Finnland eru lík lönd, og hvað lönd eru ólík! Það er klárt mál að ég mun heimsækja Ilonu í Helsinki! Enda veit hún hvar Ville Valo býr.. og já, ég átti langt spjall um hann við hana og Charlotte og nú vita allir skiptinemarnir hver framtíðareiginmaður minn er, og ég er búin að bjóða þeim í brúðkaupið. :)

Við gerðum líka margt skemmtilegt, fórum í miðbæ Jesi að versla. Ég keypti mér tösku og Ég, Ilona og Lorin keyptum okkur allar eins buxur. Rosalega sætar buxur! Við fórum líka í Teatro Pergolesi
rosalega frægt og fallegt óperuhús, það fallegasta sem ég hef séð(ekki það að ég hafi séð mörg). Og ég fékk að syngja upp á sviðinu! - Þetta þarfnast kannski frekari útskýringa. Ein af reglunum í 5-week-orientation var sú að ef maður var seinn þurfti maður að syngja fyrir alla, og auðvitað var ég sein.. oft. En þau voru víst voða hrifin af röddinni mér, og það var alveg gert í því að láta mig vera seina. Sagt mér að það væri búið að seinka þessu og hinu, að það væri annarstaðar.. nú og auðvitað læsa mig úti! Mikið stuð, mikið stuð.
Svo var bara mikið sprell á hótelinu, þar sem alltaf var verið að sussa á okkur. Við vorum í alvörunni ekki það hávær.. Við hverju bjuggust þau þegar þau samþykktu 18 unglinga inn á hótelið, þar sem vat btw ekki mikið af öðru fólki. Fór svolítið í taugarnar á mér, sértstaklega þegar það búið að reka okkur inn í herbergi um miðnætti, og starfsfólkið byrjaði á rauðvínsfylleríi í móttökunni með miklum látum! - Okey, kannski ekki fylleríi, en þau voru með rauðvín og þau voru hávær!  Svo var líka mikið af því að læðast um hótelið að nóttu til, til að fara í hin herbergin. Síðustu nóttina laumuðumst ég, Anna (Þýskaland), Charlotte (California), Christopher (Ungverjaland), Francicso (Hondúras), Cao (Kína) og Elvis (Kólumbía) út úr herbergjunum okkar um nóttina, og settum tannkrem á andlitið á fólki, vaselín á hurðahúna og fleira klassískt. Hef sjaldan hlegið svona mikið, svo voru strákafíflin böstuð.. en við stelpurnar náðum að fela okkur og laumast aftur inn í herbergið okkar. Heimsku strákar.

Nú man ég ekki meira í bili, enda orðin allgóð lengd á þessu.

xoxo
Eyrún sem er að fara til Flórens á laugardaginn!


"hresstu þig við, liðkaðu lið.. dúddelídú, dúddelídú"

Hæ, ég heiti Eyrún og ég get borðað heila pítsu ein! :)

Pizza á hverju kvöldi!

Gellz

Gettu hvaða land ég ég - fékk Rúmeníu.. erfitt!

Uppáhaldslöndin mín - Serbia og Finnland!

Catie og ég :)

Ég og Dhea, professional í indónesískri matargerð

Charlotte - Myrthe - Catie

Ilona - Francicso - Ég

Stuð í eldhúsinu

Ég og Anna mín! :)

Ég, - Anna(Þýskaland) - Francicso(Hondúras)

Ég og Andrea(Hondúras)

Kanilsnúðar <3

Lorin - Marija - Ég - Myrthe - Andrea - Catie

Svo fallegt!

Iss, það hafa ekki allir sungið þarna :)


Hótelið

8 comments:

  1. Ég hef aldrei heyrt talað um neinn Ville Valo.
    Með hverjum ferðu til Flórens?
    ma

    ReplyDelete
  2. Guð mamma, það er slatti af myndum af honum í herberginu mínu.
    Fer með Kristiönu, sem er skiptinemi hérna. Engar áhyggjur, Flórens er fullkomnlega örugg borg. :)

    ReplyDelete
  3. Alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín og vonandi skemmtirðu þér vel í Flórens:) ég værri allavegana til í að fara þanngað.
    Kv Bobba

    ReplyDelete
  4. Það lítur út fyrir að vera alveg hrikalega gaman hjá þér á þessum myndum! :)
    Frábært hvað þú ert heppin með fjölskyldu líka - það eru ekki allir jafn heppnir.

    Knús til þín :*

    ReplyDelete
  5. Vááá hvad mér finnst tíminn fljótur ad lída hjá tér ! haha :)
    Tad er gott ad tad er gaman og ad tu skemmtir ter :)
    Verd ad segja ad eg ofunda tig sma a ad tíminn hjá tér er svona fljótur ad lída og ad tu hefur svona gaman ;) hehe
    Haltu bara áfram ad skemmta ter, en i hofi samt. Vid viljum ekki ad tu komir fyrr heim ólétt af tvíburum ;o) hehe (svona er brasilískur humor)
    Vid sjaumst saeta ;*

    ReplyDelete
  6. eyrún mín þú ert yndi! <3
    þú ert líka langsætustu af þessum krökkum haha!
    en já þú ert með án efa skemmtilegustu bloggin til að lesa!
    sakna þín meira en þú getur ímyndað þér :( ;*
    -ísfold <3

    ReplyDelete
  7. Frábærlega skemmtileg frásögn - skemmtu þér vel í Flórens - flott borg. Passaðu þig bara á að fá ekki kaupæði - það er (var allavega) allt of mikið af tryllingslega eigulegu dóti þar.
    Kær kveðja frá Ítalíuóðri afasystur.

    ReplyDelete
  8. Guuuuðð vá hvað ég öfunda þig stelpa :o en já mér finnst alltaf gaman að lesa bloggið þitt finnst alltaf eins og ég sé bara hjá þér :D haha vá mér vanntar samt svo eitt stykki Eyrúnar knús núna :*
    Skemmtu þér sjúklega í Flórens :D

    - Anna Margrét

    ReplyDelete