Wednesday, October 13, 2010

Bangladesh drepur mig!

Sagði að ég myndi skrifa annað blogg fljótlega..

Lífið gengur sinn vanagang hér. Allt gott að frétta samt, mér líður rosalega vel hérna og finn ekkert fyrir alvarlegri heimþrá, meira svona þrá í kókómjólk. Fór reyndar að pæla, þegar ég kem heim mun ég þá geta fundið mína eigin heimalykt? Hlakka til að komast að því!
Fór út að skokka síðasta laugardag, ætlaði að taka stutt skokk um parco til að læra að rata aðeins um hann en endaði á því að fara eitthvert lengst út í buskann. Fór bak við parco, yfir ána og ég held að ég hafi farið alla leið til Faenza.. obbosí! Samt yndislegt að fara bara út í buskann og hlaupa bara, fá smá útrás. Svo líður manni svo vel á eftir. Fer maður ekki að framleiða hamingjuhormón af því að hlaupa? Þá veit maður hvaður hvað maður gerir gegn heimþrá, hunskast út að hlaupa eða í ræktina. Ekki veitir af skal ég segja ykkur.
Skólinn er yndislegur, elska krakkana í bekknum mínum! Er samt komin með nýja stundartöflu, eins og ég sagði í síðasta bloggi, svo að ég fæ bara að vera með þeim 12 tíma á viku. Ekki sátt. Hitti reyndar tvær vinkonur Fabio, kína-bróður míns, í hinum bekknum og þær eru alveg búnar að taka mig að sér þar, þó að enskan sé ekki sú besta hjá greyjunum. Babla líka bara ítölsku við þær, og geri ensku verkefnin þeirra. Win-win situation.
Annars líður tíminn hérna rosalega hratt, vikurnar eru búnar áður en þær byrja. Með þessu áframhaldi verð ég komin heim í næsta mánuði! Finnst samt svo skrítið að ég sé búin að vera í mánuð hérna, ef þetta er 1/10,  þá eru 9 í viðbót ekkert mál, þetta líður svo hratt!

Ég fagnaði mánaðarveru minni, og sauðamessu-missi mínum, með því að vakna eldsnemma á mínum eina hvíldardegi og fara í kirkju með fjölskyldunni. Þetta er ekki sama kirkjan og ég fór í síðast, heldur einhver önnur mun sætari að utan.. en alveg jafn óhátíðleg og leiðileg að innan. Ég fór með Andrea á undan, og hitti einhverja vini hans. Þau eru kaþólskir skátar(skátar eru trúartengdir á Ítalíu) og voru að líma saman pabbakassa, ekki veit ég afhverju en það var gaman að kynnast krökkunum og hitta strákana aftur. Messurnar eru ekki jafn hátíðlegar og heima, eða kannski fannst mér andrúmsloftið ekki nógu hátíðlegt í þessari flísalögðu kirkju, og sálmarnir minntu meira á sunnudagsskólalög en sálma.
Svo flissaði ég smá þegar töffararnir, vinir Andrea, gengu um og söfnuðu pening fyrir söfnuðinn. Algjörir englabossar sem lögðu sig örugglega í klukkutíma áður en þeir mættu í kirkju eftir að hafa verið á djamminu.
Eftir messuna var einhver hátíð, við fengum að borða og ég var kynnt fyrir prestinum og einhverjum prestanema sem var reyndar mjög skemmtilegur. Afhverju í ósköpunum ætli hann vilji vera prestur?
Þetta var svo sem ágætis hátið, en það var drullukalt og ég var orðin vel þreytt eftir að hafa verið þarna allan daginn! Þannig að ég fór svo bara heim í ullarsokka og lopapeysu að kúra.
Í dag var ég í tveimur eyðum, en nei.. þá varð ég bara að gjöra svo vel að sitja inn í einhverjum tíma. Fór fyrst í ensku með 3.b(tískuhópnum) svo með 4.f(sem er tískuhópurinn í mínum bekk) og svo loksins í ensku með 4.b(mínum bekk). Mikið ofboðslega eru krakkarnir í mínum bekk góðir í ensku miðað við hin. O, hvað ég er þakklát!
Eftir skóla fór ég svo í ítölskutíma hérna í Forlí. Innflytjendanámskeið eins og ég kalla það. Fínt námskeið og ég er búin að eignast tvo vini þarna, lítinn strák og svo einn á svipuðum aldri og ég frá Rúmeníu held ég. Þeir eru bara ágætir í ítölsku og við sitjum aftast og hlæjum og pirrumst á hinu fólkinu. Óttalegir heimskingjar þetta fólk, og ég er að reyna orða þetta fallega. En kommon, ég hef búið hérna í mánuð og ég er betri en þau. Það er fólk þarna rennreipandi í frönsku, en getur ekki með nokkru móti lært að skilja muninn á buon giorno og buona sera,(sem að þarf að fara í gegnum aftur og aftur) skilur ekki þérun og muninn á formlegum samræðum og óformlegum og getur ekki með nokkru móti sagt stafina rétt. Oh, svo tekur það 2 klst. að fara í gegnum eina opnu í bókinni, þannig að ég og rúmesnku strákarnir erum alltaf löngu búin með allt og pirrumst út í hina. Sérstaklega stelpuna frá Bangladesh sem að ég sver að verður minn bani. Síminn hennar hringir svona 5 sinnum í tíma, og hún verður alltaf jafn vandræðaleg og fattar ekki að láta símann bara á silent. Svo skilur hún ekki neitt og það tekur alltaf allan tímann að útskýra fyrir henni. Hún er samt voða krúttleg.

Svo er það bara 6 week camp (meira svona 5 week camp) 14.-17.október. Hlakka til að fara, og lofa heitu og safaríku bloggi eftir þá ferð!


(Okey, smá vandræðalegt en ég gerði þetta blogg í gær(12.október) en sofnaði þegar ég var að uploada myndunum. Lagaði það til áðan, en gleymdi að ýta á "publish" áður en ég fór til Cesena, og var svo rosa sár að vera ekki komin með nein comment. Þannig að núna kemur þetta.)

Kossar í ykkar kot!
xoxo
Eyrún















Elsa skvísa að tana

Elsa póser!

Herra engispretta




 TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSA!

ELSKA ÞIG! :) <3


Var án gríns allan daginn að gera þetta, fékk svo sæta bekkinn minn til að skrifa undir! :)


Sætu Elsa og Eyrún!










loooooooooooooooooooooooove!

6 comments:

  1. Ert þú líka með uppskrift af peysunni með skátamunstrinu?
    Eru útimyndirnar með þessu bloggi úr garðinum þarna rétt hjá þér?
    Ma

    ReplyDelete
  2. Ég var einmitt rétt í þessu að fara í lopapeysuna mína í kuldanum... hér er rok og rigning - ekta sofiveður! En maður hefur nú engan tíma fyrir svefn fyrir þessu námi öllu saman!

    Elska að lesa bloggið þitt, það er allt svo frábært hjá þér! =) Vona að það haldi áfram að vera svona gaman hjá þér krútta! :*


    P.s. Ótrúlega flottar myndir af ótrúlega flottu umhverfi :)

    Knús :*

    ReplyDelete
  3. Ahhh hvað þetta er allt saman fallegt algjör draumur!! Ég elska samt sérstaklega myndina af ykkur litlum algeeerar rúsinur! :) En hey! þú ert ekki búin að heyra allt sauðamessy-slúðrið haha!? :D skype-hittingur á næstunni? það held ég!
    En gott að heyra/lesa frá þér Eyrún mín, hafðu það gott :D :*

    Sólveig :*

    ReplyDelete
  4. Hæ Eyrún. Langaði bara að láta vita af mér að ég kíki alltaf reglulega hérna inn og les bloggið þitt. Man alltaf hvað mér fanst pirrandi að fá ekki komment á bloggið mitt, og hvað það var gaman að fá eitt komment og sjá hverjir væru að skoða! Ótrúlega gaman að fylgjast með þér og sjá hvað þú ert að gera. - það lýtur allt út fyrir að þú sért að njóta þín í botn - Haltu því áfram :))

    kv, Íris Gunn

    ReplyDelete
  5. Mamma: Nei, þetta er fyrir bakvið garðinn. Maður fer yfir ána og það liggur stígur til Faenza sem ég fór eftir.

    Guðríður: Það er líka orðið ískalt hér,svona stundum. Rakin í loftinu gerir kuldann svo mikið kaldari!

    Sólveig: TELL ME! hahaha.. skype hittingur bráðum!

    Íris: Alltaf gaman að vita hverjir eru að lesa bloggið! :)

    Knús! :)

    ReplyDelete
  6. Æðislega flottar myndir! þetta er nú meiri draumurinn sem þú ert stödd í :)

    Knús á þig :*

    ReplyDelete