Allt gott að frétta héðan, búin að vera hérna í 3 vikur. Finnst þetta bæði hafa verið mikið lengur og samt svo rosalega stutt. Skólinn er kominn í rútínu að mestu og ég er alveg komin inn í hópinn hjá þessum elskum. Ég er mest með Betty, Dennis, Susönnu og Frederiku, en þetta er samt rosalega góður bekkur og þau eru dugleg að útskýra fyrir mér hvað er í gangi og taka mig með sér út um allt. Ég vildi að ég gæti talað ítölsku fullkomnlega, bara til þess að geta spjallað endalaust við þau!
Síðasta fimmtudag, 30. september, fór ég í annan ítölskutímann minn í Cesena með hinum skiptinemunum. Fór alveg sjálf með strætónum, ekkert smá stolt af mér fyrir að vita sjálf nr. hvað ég átti að taka og hvar ég átti að fara út... Það að það stóð Cesena framan á strætónum og ég fór út á endastöð kemur málinu nákvæmlega ekkert við!
Þau eru fjögur saman í Cesena, Radhea frá Indónesíu, Francisco frá Hondúras, Anna frá Þýskalandi og svo Lorin frá Belgíu sem er hérna í 3 mánuði. Svo er Daniela frá Kólimbíu í Rimini og Kristiana frá Lettlandi sem er lika í 3 mánaða prógrammi. Næsta lest fór ekki strax þannig að Cesena-krakkarnir sýndu okkur aðeins borgina. Þarna er m.a. elsta almenningsbókasafn í Evrópu sem ég ætla að sjálfsögðu að skoða einhvern tímann. Kíktum aðeins í búðir, en ég keypti mér ekki neitt. Ég hef eiginlega ekki eytt neinum pening hérna, aðeins í mat í skólanum og gelato, sem við fengum okkur auðvitað. Ég sver að ef ég hætti ekki að borða þennan blessaða nutella gelato verð ég endanlega hnöttótt og kemst ekki í flugvélina heim.. hann er bara SVO GÓÐUR!
Við vorum svoldið sein í lestina, en það gerði ekkert til og lestin var ennþá á sínum stað þegar við komum. Hún fór svo reyndar ekki neitt því að einhver hafði stokkið fram fyrir lest í Rimini og dáið og allt lestarkerfið var frosið. Daniela fattaði að hún var búin að týna veskinu sínu og allt varð rosalega mikið vesen. Engin lest + týnt veski + 7 skiptinemar fastir í Cesena. Endaði með því að foreldrar Kristiönu þurftu að ná í okkur, við fengum loksins að borða og fórum svo til Santarcangelo þar sem að hátíðin var. Ótrúlega fallegur staður, gosbrunnagarður(kann ekki að útskýra það betur) og kastali, svo var torgið ekkert smá fallegt. Rosalega gott kvöld með skemmtilegu fólki.
| Bókasafnið haha :) |
| Dýrka þessar skvísur :) |
| Sæti bíllinn |
| Miðaldahátið og kstalinn :) |
| Klappa fálka :) |
| Oooo þessi var SVO sætur, mig langaði að eiga hann! :) |
Á föstudaginn fór ég á ítölskunámskeið hérna í Forlí, það er í skólanum sem er hliðina á skólanum mínum. Og váá, þetta var í fyrsta skipti sem mér leið eins og útlendingi hérna! Þarna voru allskonar innflytjendur frá Kína, Indlandi, Albaníu og meira segja eins miðaldra pólsk kona sem var hryllilega léleg og vitlaus en lagði sig svo mikið fram og einn Muhammed. Ég bjóst við að þetta yrði of erfitt fyrir mig, en nei.. þá voru þau bara að fara í ciao, crazie og muninn á buon giorno, buona sera og buona notte. Tveir langir og leiðilegir klukkutímar, en svakalegt boozt fyrir egóið. Ég er búin að vera hérna í 3 vikur og kann meira en þetta fólk sem sumt hefur búið hérna í mörg ár!
Ég er nú samt enginn ítölskusnillingur, segi aðallega bene, si og no en ég skil rosalega mikið. Reyni nú samt að hnoða einhverjum orðum saman í setningar, en mig vantar ennþá allar samtenginar og þessi litlu orð til að gera almennilegar setningar. Þetta fer samt allt að koma - Lorin talar samt svo góða ítölsku og Anna bullar alltaf einhverju út úr sér þannig að ég verð alltaf ógeðslega öfundsjúk.
Nú ætla ég aðeins að segja ykkur frá því hvernig íþróttatímar virka hérna.
Það er byrjað á því að hlaupa 4 hringi á vellinum, svo er farið inn og teygt á og ýmsar æfingar gerðar. Íþróttakennararnir tveir eru eins og klippt út úr bandarískri bíómynd frá 1980, kallinn ótrúlega krúttlegur og rakar bara lauf fyrir utan en konan algjör harðjaxl! Svo fá strákarnir að fara út í fótbolta, en stelpurnar þurfa að vera inni og spila blak. Hérna er ég líka algjört íþróttaundur, get gert magaæfingar, armbeygjur og allt, meira segja hlaupið 4 hringi á vellinum án þess að deyja. Stelpurnar í mínum bekk eru ekki með neitt úthald enda reykja þær eins og strompar, en strákarnir eru nú í lagi. Ættu samt ekkert í strákana heima, haha! Þess má nú samt geta að ég er ennþá HRÆÐILEG í blaki, svo að ég ætti ekki að segja mikið.
Er samt í miklu uppáhaldi hjá kennaranum og hún lætur mig alltaf sýna hvernig á að gera allt, frá því að kasta bolta með vinsti hendinni yfir í að hlaupa háar hnélyftur.. sem virðist vera rosalega flókið fyrir stelpurnar hérna! Spiluðum svo blak á hálfann völl 4 í liði með strákunum. Ég var með Nicolo og einhverjum pakkstelpum úr tískubrautinni, möluðum þetta! Samt eiginlega bara aðþví að Nicolo er með svona 4 metra "vænghaf" og að því að ég er búin að læra að gefa upp. Djöfull væri samt gaman að koma heim rugl góð í blaki, reiprennandi í ítölskunni og tönuð í drasl!
Eftir íþróttir er ekki farið í sturtu, jafnvel þó að það sé sturtuklefi í búningsherberginu. - Mín kenning er sú að þau fari ekki í sturtu því að það tæki of langan tíma fyrir alla að þurrka á sér hárið, svo að maður tali nú ekki um kosnaðinn við að kaupa svona margar hárþurrkur. Því að auðvitað deyr maður ef maður fer út með blautt hárið á Ítalíu.
Þetta sleppur samt venjulega, bara heimspeki og svo heim.. beint í sturtu. Nema hvað að akkúrat þennan dag var ég að fara til Bologna, þannig að ég ætlaði sko að drífa mig heim til að fara í sturtu.. en nei. Beið ekki fósturpabbi minn eftir mér fyrir utan skólann, og við brunuðum beint til Bologna. Þannig að ég fór til Bologna án þess að fara í sturtu.. bara með 5 evrur í vasanum.. með myndavél, en ekkert batterý í hana!
Bologna er bellisimo. Ótrúlega falleg borg! Við byrjuðum á því að fara á Giuseppe's bar, sem er veitingastaður, gelateria og bar sem að æskvinur fósturpabba míns á. Hann er alveg í hjarta borgarinnar, beint á móti San Petronio Basilica. Í dag(4.október) er dagur heilags Petronio sem er dýrðlingur Bologna og það var hátíð þarna alla helgina. Rosalega mikið af fólki(eins og allstaðar hérna), tónlist og flott atriði. Allt á torginu fyrir framan mig, þannig að ég sat bara þarna í sólskininu að borða gelato og horfði á fólkið í kringum mig. Ah, svona ætti lífið alltaf að vera. Ef þið farið til Bologna er þessi staður algjöst möst! Svo skemmdi nú ekki fyrir að sonur eigandans, hann Francesco var ekkert að hata stelpuna!
Hann manaði mig og fósturpabba minn til að fara upp Torre de Asinelli, sem er 498 þrep, það gera 996 þrep upp og niður, takk fyrir! Þetta var nú reyndar ekkert mál og útsýnið var svo fallegt! Það var miklu erfiðara að labba fram hjá Zöru, H&M og Disney búðinni á leiðinni til baka.. Mér fannst samt verst að vera ekki með myndavélina, því að myndavélin á símanum er ekki næstum því jafn góð. Skoðuðum líka Cattedrale di San Pietro, sem er svo falleg. Ég get eiginlega ekki líst því, ég hefði getað verið þarna allan daginn. Verð eiginlega að fara þangað aftur, til að taka myndir og skoða þetta betur. Æj hvað þetta er orðið langt.. bara einn dagur eftir!
![]() |
| Ekkert mjög traustverkjandi stiginn þarna upp :) |
![]() |
| Via Emilia - rómverskur vegur frá því fyrir langa langa löngu síðan. |
![]() |
| Lofthræðslan sagði aðeins til sín |
![]() |
| Belissimo útsýni yfir borgina :) |
![]() |
| Hátíðarhöld |
Byrjaði sunnudaginn á því að fara með fósturpabba mínum í kirkju. Alls ekki falleg kirkja, greinilega nýbyggð og barasta ekkert kirkjuleg! Samt gaman að prófa að fara, margt mjög líkt og margt mjög ólíkt. Svo var líka kirkjan full, það þótti mér merkilegast! Eftir kirkju hjóluðum við svo eitthvað, meðfram parco santo augusto, sem er almenningsgarðurinn hérna rétt hjá, og niður á Piazza Saffi sem er aðal torgið hérna. Svo ætlaði fóstupabbi minn að vera rosalega sniðugur og kynna mig fyrir pistasíum, mikið óskaplega varð fjölskyldan hissa þegar ég vissi hvað þær væru, og að við hefðum þær á Íslandi, órúlegt!
Um kvöldið fórum við svo til Cesena, þar sem allir skiptinemarnir, fjölskyldurnar og nokkrir sjálfboðaliðar hittust heima hjá Önnu og fjölskyldunni hennar. Allir komu með eitthvað að borða, og þetta var bara yndislegt kvöld með skemmtilegu fólki, mikið hlegið og mikið gaman!
| Krúttlegasti AFS hópurinn + nokkur systkini :) |
- Dennis kenndi mér að flauta með puttana upp í mér, það er mjög einfalt! Maður lætur tungubroddinn bara fyrir aftan efri framtennurnar og lætur svo fingurnar þar og blæs. Hah, stolt! :)
- Nicola, Nicolo, Dennis Susanna, Betty og fleiri krakkar eru að fara til London saman - og buðu mér með! Þau eru að plana þetta því að það er búið að skera niður hjá skólunum þanni gða það verða engar skólaferðir í ár. Frábært! En ég má ekki fara því að þetta er annað land, ekki á vegum skólans og engir foreldrar.
- Ítalskir krakkar eru ekki í mjög góðu formi - alls alls ekki..
- Það eru svona rassaþvottaskálar(sem líta út eins og hálft klósett) á öllum baðherbergjum - yuck nei takk.
- Enskukennarinn minn er rugluð kona. Hún er með furðulegasta orðaforða sem ég hef nokkurn tímann kynnst, ber ótrúlegustu orð vitlaust fram og er ROSALEGA hávær, meira segja á ítalskan mælikvarða. Fæ alveg fyrir eyrun.
- Stærðfræðkennarinn er mjög ógnvekjandi kona, einbrýnd og ströng á svipinn. Er líka að fara í próf 12. október. Oooo-ó.. skrifa bara "Elsa á afmæli" í öll svörin :)
| Skelli inn einni flunkunýrri! |
Takk fyrir að klára að lesa þetta, þetta var alls ekki jafn langt og þú heldur.
Svo þykir mér rosalega vænt um þessi litlu sætu komment sem er hægt að skilja eftir sig. :*
Ekki hafa það of gott án mín :)
Svo þykir mér rosalega vænt um þessi litlu sætu komment sem er hægt að skilja eftir sig. :*
Ekki hafa það of gott án mín :)
xoxo







Langflinkust! Flottar myndir - og greinilega bara gaman. Andare avanti - meira blogg :) Tanta á Egilsstöðum
ReplyDeleteÞað er nú bara alltaf lang skemmtilegat að lesa löng blogg ef þau eru skemmtileg, og það skemmir sko alls ekki fyrir hvað þú ert góður penni Eyrún! :D Vá hvað það er fallegt þarna, þú verður að taka billjóns myndir! Og haltu bara áfram að blogga, ég kíki á hverjum degi :D :*
ReplyDeleteHafðu það gott og gaman!
Sólveig :*
Vá, nú langar mig til Ítalíu. *öfund*
ReplyDeleteLofa að vera dugleg að blogga, svo lengi sem að þið eruð duglegar að commenta svona skemmtilega!
ReplyDeleteÁst á línuna :*
Ótrúlega flottar myndir =)
ReplyDeleteÉg ætla klárlega til Ítalíu einn daginn!
Kossar og knús til þín frá mér!
P.s. haltu áfram að vera dugleg að blogga, það er svo gaman að lesa bloggin þín. Ég kíki á hverjum degi til að athuga hvort það sé komið eitthvað nýtt hehe :*
Flottar myndir og eins og ég segji ALLTAF jafn gaman að lesa bloggið ert með svo skemmtilegt blogg :D
ReplyDeleteVaaá alveg sammála Guðríði ég ætla svo sannarlega til Ítalíu sko :D
sakna þín sæta mín :*
Vertu dugleg að blogga svona skemmtilega :D
Anna Margrét
# Stærðfræðkennarinn er mjög ógnvekjandi kona, einbrýnd og ströng á svipinn. Er líka að fara í próf 12. október. Oooo-ó.. skrifa bara "Elsa á afmæli" í öll svörin :)
ReplyDeleteHAHA þú ert nú meiri prakkarinn :D :*
lovjú <3
kveðja, Elsa Hrönn :-* heh
Stelpur! Skvísuferð til Ítalíu er klárlega málið einn daginn. Við verðum saumaklúbbur sem ferðast um heiminn!
ReplyDeleteBacci! :*
Endalaust spennó og gaman að lesa bloggið þitt!! Ég treð mér með í þennan saumaklúbb ykkar ;)
ReplyDeleteRISAknús til þín :*
Kv. Brynja & beibís
Já Brynja þú kemur í saumaklúbbinn! Aldrei stuð án Brynju Ball!
ReplyDeleteKnús á þig og ormana :*
Halló Eyrún. Það var gaman að skoða myndirnar þínar.Flottur fálki.KR var að rústa STJÖRNUNI í körfubolta.Það er allt gott að frétta hjá okkur stelpurnar voru að byrja að æfa fimleika og Benedikt var að klára samrændu prófin og gekkk vel.Á laugardaginn ætlum við að horfa á afa éta lambakjöt.
ReplyDeleteKveðja frá Benedikt, Hildi Arneyju og Jóhönnu Karen og auðvita foreldrum þeirra líka :)
Ps. Benedikt skrifaði :)
gaman að lesa blogið þitt skvísa ;*
ReplyDelete- mun sakan þín endalaust á suðamessu(og alltaf):D
- náttúrulega miklu skemtilegar hjá þér <3
oog var einmitt að læra um svona rómveskargötur í sögur um daginn haha
Margrét ;*
Hæ Benedikt! Fálkinn var ótrúlega flottur, alveg taminn! :)
ReplyDeleteGott að þér gekk vel í samrændu og að KR er að standa sig hehe. Bið að heilsa mömmu þinni og pabba, og auðvitað litlu dúllunum :)
Knús!
Margrét: Ég tek Sauðamessuna bara á næsta ári, með þig mér við hlið! :*