Já, nú verðiði hissa. Ég er nefnilega komin á tískubraut! Eða það vilja þau kalla þetta.. þetta er auðvitað bara hönnunarbraut. Ég er ekkert allt of sátt með það að þurfa að eyða tíma mínum í saumum, sem er líklega eina fagið á minni skólagöngu sem ég hef alltaf verið virkilega léleg í og hatað!
Auðvitað hljómar það að læra tísku á Ítalíu rosalega vel, en ég er virkilega sár að þurfa að yfirgefa bekkinn minn svona mikið, er með stelpum á 3. ári á tískubraut, en er líka með "gamla" bekknum mínum í nokkrum fögum.
Saga tískunnar er fín, reyndar ekki eins og ég bjóst við. Núna erum við að læra um klæðnað forn-grikkja, kannski ágætis staður til að byrja. Mér líst ekkert á sauma, enda skíthrædd við saumavélar og þessar eru eins og skrímli! Ég er líka í einhverjum fyrirsætuáfanga, HAH hvað halda þessir kennarar að ég sé? Ég myndi drepa fyrir náttúrufræði, já jafnvel stærðfræði (sem að ég er ekki í lengur). Bara eitthvað gagnlegt fag... plíííís! Hvernig í ósköpunum mun ég geta fengið pósu áfangann og sauma metna í MB? Ég bara spyr.
Landafræði er skemmtileg, kennarinn er furðuleg kona sem dýrkar mig og búin að kenna mér fullt af ítölsku, þýskukennarinn er álíka skrítinn og landafræðikennarinn er elskar mig því að ég get borið fram þýsku orðin betur en krakkarnir í bekknum sem eru búin að læra þýsku í 4 ár!
Ég skil ekkert í sögu, en fæ alltaf böns af heimanámi til að þýða, þannig að það er ekki í uppáhaldi. - Sama gildir um ítölskuna.
Ég ELSKA íþróttir, fyrir utan hvað ég er léleg í blaki, hehe. Kennarinn er frábærust í geimi (fyrir utan blak-áráttuna auðvitað) og hrósar mér fyrir allt. Enska er fín, 6 tímar á viku fyrir það sama og ég lærði í 7.bekk þykir mér samt full mikið af því góða, enda er ég búin með ensku í menntaskóla og þetta gagnast mér núll! Fínt samt að skilja eitthvað, og þó að kennarinn sé hávær, með furðulegan orðaforða og svipað góð í ensku og ég var í 8.bekk (Nei okey, hún er góð í ensku. Ber bara allt fram vitlaust og notar skrítin orð.) þá finnst mér þetta gaman. Hún talar alltaf um Jane Austen og Shakespeare, sem eftir sumarið eru orðin sérsvið mín. Hún lætur mig samt aldrei lesa upphátt eða svara spurningum, sem fer ROSALEGA í taugarnar á mér... Oh! Svo er Nicola farin að kalla mig Hermione Granger, því að ég með risa hár sem að hann sér ekkert fyrir(hann situr oftast fyrir aftan mig) og iða um í sætinu til að fá að svara spurningu, í þau fáu skipti sem ég skil hvað er að gerast og veit hvað svarið er. Þessi elska, ég dýrka hann! Ég hefði ekkert á móti því að vera Emma Watson samt.. svona fyrst að ég er komin inn á það umræðuefni, hún á örugglega nóg af Burberry. Það eiga svo margar konur Burberry tösku hérna!
En já, Basta blogg.. kemur annað á morgun, því að ég er búin að vera á Ítalíu í MÁNUÐ!
Kossar og knús
xoxo
Eyrún
Iss.. það skiptir engu máli þó að þú fáir þetta ekki metið inn í MB - það er bara gaman að fara í eitthvað svona algjörlega nýtt, ný fög og svona sem maður hefur aldrei prófað :)
ReplyDeleteKnús og kossar til þín elska :*
Þú ert að fá að prófa þarna eitthvað alveg nýtt. Það verður mikil reynsla enda ertu í alveg nýju umhverfi. Allt í lagi að taka sér smá frí frá stærðfræðinni. Annars er líka stærðfræði í saumum, það þarf alltaf að vera að mæla og reikna þar líka. Hvað er þetta auto... eitthvað sem þú ert að læra á fimmtudagsmorgnum?
ReplyDeleteMa
Iss.. þú fengir samt ekkert metið - sama hvort það væri kennt hér eða ekki :)
ReplyDeleteNjóttu þess bara að fá skemmtilega menntun!
Inga
nice stundatafla! og hvað erut eiginlega að gera í modeling haha sitja fyrir eða hvað?
ReplyDeleteoog hermonie granger hahah sniild ;D
Margrét <3
Jú Inga, ég fékk lista yfir fög sem að ég gat fengið metin. Íþróttir, landafræði, enska og saga.. ef ég er heppin þýska. :)
ReplyDeleteMamma, ég veit ekki hvað automazione er, er ekki búin að fara í tíma í því en.
Modeling er furðulegt fag.. eitthvað um samræmi á milli líkamsparta (ef höndin á þér er x löng ætti hálsinn að vera x langur) sem mér finnst fáránlegt. Eitthvað líka talað um hvaða stellingar lengja líkamann og bull.. ekki hrifin af þessu fagi.
Samt allt í lagi, bara fúlt að vera minna með bekknum mínum, er það eru 2 stelpur á tískubrautinni sem eru vinkonur Fabio svo að ég er ok. Þau tala samt eiginlega enga ensku.
HATA SAUMA, ELSKA LÍFIÐ!