Friday, October 8, 2010

"Potrete recidere le margherite ma non fermeréte la primavera"

 
"Þú getur skorið niður blómin, en þú getur ekki stoppað vorið."



Ég er ein í ókunngu landi, ég tala ekki tungumálið og þekki ekki umhverfið. Samt er ég óendanlega hamingjusöm. Dagarnir líða hratt, en samt svo hægt og ég læri og uppgötva svo margt á hverjum degi. Auðvitað er þetta ekki alltaf gaman, ég fæ oft mikla heimþrá á morgnanna þegar ég sit ein í ísköldu húsinu að borða ólystugt morgunkorn með mjólk sem rennur út í desember. Hvar er ferski appelsínusafinn minn, ristaða brauðið og ávextirnir sem ég fékk mér alltaf? Hvar er hafragrauturinn? Ég er stundum næstum því með tárin í augunum þegar ég labba í skólann, allt er öðruvísi, ég skil ekki neitt og hér er allt of mikið af fólki og bílum. En það lagast fljótt, því að á hverjum degi er tekið á móti með knúsi og kossum á báðar kinnar, elska það. Ætla svo sannarlega að halda í þá hefð.
Það er að koma haust hérna, það er akkúrat tíminn núna milli síðsumars og hausts. Veðrið er ennþá mjög gott, sól og 20-25° hiti, en trén eru byrjuð að fella laufin og inn á milli koma skýjaðir dagar með furðulegri úða-rigningu. Þá eru allir með regnhlíf, en úðinn er svo fíngerður að maður blotnar ekki við að standa úti í henni.
En í fyrradag var aftur á móti sumarveður, hitinn fór upp í 27°og ég skellti mér í minn fyrsta könnunarleiðangur ein og fótgangandi um centro Forlí-borgar. Ég er á frábærum stað í borginni, það tekur mig að meðaltali 6 mínútur að labba í skólann, það er guðdómlega fallegur almenningsgarður og falleg á hinum meginn við götuna, og 15 mínútna gangur í Piazza Saffi, miðbæinn. Það var rosalega gott að fara eitthvert alveg ein, fékk tíma til að skoða það sem ég vildi á leiðinni, virða fyrir mér fólkið og taka myndir. Rakst á Önnu, bekkjarsystur mína og sat og spjallaði við hana, því miður á ensku því að krakkarnir í mínum bekk eru allt of gjarnir að tala bara ensku við mig,  á meðan hún beið eftir kærastanum sínum. Kærastinn var eitthvað seinn svo að við sátum þarna í tæpan klukkutíma.
Þessi könnunarleiðangur minn endaði auðvitað sem verslunarleiðangur. Fyrst fór ég í búð sem heitir Scout (alltaf skátanörd í hjarta) sem er frekar ódýr búð, minnir mig svoldið á outlet, en þetta er víst eitthvað merki. Keypti mér gallabuxur, joggingsbuxur, 2 stuttermaboli og klút þar. Þessi gallabuxnakaup voru áminning á það að fitna ekki, þá er bara að taka sig á og hætta að borða allann þennan gelato! Eftir það fór ég í búð sem heitir OVS industry, ætlaði ekki að kaupa neitt þar, og stóðst meira segja freistinguna að kaupa mér hæla (enda ekkert við þá að gera, er miklu stærri en allir hérna) en keypti mér nú samt peysu með mynd af Snar eða Snögg(i?) framan á, tvö hálsmen, hring, eyrnalokka og armband.
Tískan hér er svo allt öðruvísi en tískan heima. Það er ýmislegt hér sem þykir mjög töff sem að engum myndi detta í hug að klæðast eða gera á Íslandi.  
  • Varaliturinn og augnskugginn er ekki sparaður, en augabrúnir eru ekki eitthvað sem mikið pælt í og eru þær oft ansi skrautlegar. 
  • Blautur eye-liner á efra augnlokið - skemmir ekki ef hann er með glimmer eða í skemmtilegum lit.
  • Það eru allir í gallabuxum, alltaf! 
  • Bolir og peysur með teiknimyndafígúrum, myndum og þessháttar eru mjög vinsælir. 
  • Íþróttaskór, eins og við notum í leikfimi þykja svakalega flottir, sérstaklega ef þeir eru "pumpaðir" upp.
  • Litríkar teyjur, hárspennur, vinabönd og gúmmiarmbönd(svona eins og allir áttu einu sinni) eru nauðsynlegir fylgihlutir.
  • Ítalskar stelpur hlaða á sig skartgripunum: Þung hálsmen, stórir eyrnalokkar, armbönd og hringir á marga fingur er möst.
Eftir þessa verslunarferð mína gekk ég heim á leið, keypti mér gelato, stoppaði í gömlum kastalagarði skoðaði mig um þar, rosalega fallegt. Svo þegar ég ætlaði að fara heim sá ég að klukkan var ekki nema hálf 5, svo að ég ákvað að fara í parco, eða Parco Santo Augusto eins og hann heitir. Þetta er s.s. almenningsgarðurinn á móti húsinu mínu.
Mig langaði alltaf að fara til Englands sem skiptinemi, en sé sko alls ekki eftir því að hafa valið Ítalíu. En þarna, en þarna fékk ég það besta.. yndislegu ítölsku sólina og landslag sem minnir mig á "english countryside".  Svo skemmdu allar sætu villtu kanínurnar ekki fyrir..
Mannlífið hérna er svo skemmtilegt, þegar ég labbaði niður í bæ sat hópur af gömlum mönnum fyrir utan bar(barir hér eru öðruvísi en barir á Íslandi) og voru þar ennþá þar þegar ég labbaði til baka, 3 klukkustundum síðar. Hér situr fólk líka úti á bekkjum, eða bara tröppum og spjallar saman og virðir fyrir sér mannlífið. Í Parco er ekki óalgengt að sjá fólk sitjandi undir tré, á bekk eða í grasinu að lesa bók, skrifa, eða teikna. Það er líka mikið af kærustupörum sem labba saman um og leiðast, og fjölskyldufólki á leiksvæðunum og ömmur með hóp af barnabörnum, ég elska Ítali! Þeir eru svo háværir, dónalegir en samt svo kurteisir. Fólk brosir til manns þegar maður mætir því á götunni og bíður boun giorno, jafnvel þó að maður hafi aldrei séð þau áður.

Annars er allt og ekkert að frétta af mér, ég nenni ekki að segja hvað ég geri á hverjum degi. Það verður svo leiðigjarnt. Í gær fór ég samt til Cesena með lest, ein.(DÚGLEGÚST) á ítölskunámskeið með hinum skiptinemunum. Eftir á fórum við og fengum okkur gelato saman, ég fékk mér nutella frappe, sem er bara sjeik með nutella bragði, uppáhaldið mitt. Mæti klárlega í Hyrnuna 11. júlí með nutella krukku og bið um einn sjeik! Ég er líka öll út í einhverjum moskító/pöddu bitum á fótunum. Ógeðslegt, og mig klæjar ekkert smá.. en þetta lagast! :)


Og þetta sem átti að vera stutt og laggott blogg. O jæja, skelli inn myndum.
Ykkar að eilífu

xoxo Eyrún





























ESSO, fæ ekki heimþrá meðan það er bensínstöð í nágrenninu haha




















Ahhhhhhh


Þetta eru alvöru boxers.. bara vel pakkaðar saman!

Yndislega Madonnu armbandið mitt









11 comments:

  1. Vá hvað ég væri til í að vera þarna hjá þér :o En hahaha skemmtileg tíska þarna úti :D Snar og Snöggur :P
    En já ég sá glitta í Esso skilti þarna bídu eru ítalir ekki komnir með N1 eða :O ?
    hahah eins og ég segir alltaf... rosalega gaman að lesa bloggið þitt það er bara eins og maður sé hjá þér þarna úti :*

    Sakna þín óendanlega :*

    ReplyDelete
  2. æji yndið mitt! gott að þú sért að skemmta þér! haltu því áfram, það er svo alltof gaman að heyra frá þér eyrún mín!
    love you girl <3
    -mígó a.k.a ísfold

    ReplyDelete
  3. Mmmm hvað þetta hljómar allt vel :) og mikið er ég glöð hvað það er gaman hjá þér!

    Njóttu dagsins!

    Inga

    p.s. ég gubbaði næstum yfir "tískunni" þarna úti! GÚMMÍARMBÖND? DISNEY PEYSUR? usssss

    ReplyDelete
  4. Alltaf jafn gaman að lesa bloggið hjá þér og mig langar alveg rosalega að smaka gelato því þú hefur minnst á það alveg voðalega oft. En gott að þú skemmtir þér svona vel þarna úti :D
    Bobba :)

    ReplyDelete
  5. VÁÁÁ hvað það er faaaallegt þarna!! .. við hverju býst maður annars.. En ég mun klárlega heimsækja Ítalíu einn góðan veðurdag! :D
    Hafðu það nú gott elsku Eyrún og njóttu lífsins! :D Ég nýt þess að lesa bloggið þitt a.m.k.!

    Sólveig :*

    ReplyDelete
  6. Hvað er þetta gelato? Er það ís?
    Ma

    ReplyDelete
  7. Elsku mamma og Bobba. Gelato er einfaldlega kúluís. :)

    Anna M: Nei einmitt, svo gamaldags þessir ítalir!

    Inga: Segjum tvær - fyrstu vikurnar var ég í sjokki yfir hverju þessir krakkar klæddu sig í, hvernig þau voru útlítandi yfir höfuð. Strákatískan er samt svipuð og á Íslandi. :)

    Takk fyrir að vera sætar og kommenta, vitið ekki hvað það er yndislegt að fá hlýjar kveðjur að heiman! Elskjú all! :) :*

    ReplyDelete
  8. Elsku sæta mín, það er gaman að heyra hvað þú hefur það gott. Þín er sárt saknað á þessum bæ. Hrafnhildur var t.d. að leika sér með fermingarmyndina af þér um daginn, lét rammann labba með sér um alla íbúð og spjallaði við þig, hún er greinilega að átta sig á því að þú sért búin að vera óvenju lengi í burtu;)
    Knús og kossar frá okkur til þín.
    Elska þig litla mín kv. Anna

    ReplyDelete
  9. Æj elsku Anna, nú verðuru að knúsa Habbý frá mér. Alveg í klessu! :)
    Elska þig líka elsku systa! :)
    Knús og kossar í þitt kot!

    ReplyDelete
  10. vá hvað ég sá garðinn i 101 dalmatíuhundur fyrir mer þegar þú lýstir þessum garði þarna haha:D
    -hannah montana

    ReplyDelete
  11. Vááááá!! Big like á þetta ;)

    ReplyDelete