Thursday, November 25, 2010

1/4 ✔ - Let other pens dwell on guilt and misery.

Hæ elsku þið!


Það er allt yndislegt að frétta af mér. Í dag er ég nákvæmlega búin með 1/4 af dvölinni minni hér, iss þetta er ekkert mál! Hef reyndar ekki frá neinu sérstöku að segja, en Guðríður bað um blogg og þá fær hún líka blogg.
Í dag á fósturpabbi minn afmæli, kallinn orðinn 49 ára. Ég keypti handa honum tvær Arnalds bækur, Grafarþögn og Kleifarvatn, á ítölsku auðvitað. Svo er ég bara búin að mönsa sikileyskt bakkelsi í dag og hafa það kósý.

Annars er rosalega lítið búið að gerast hjá mér, bara skóli og svona. Ég er orðin rosalega náin krökkunum í 4B. Þau eru alveg yndisleg, en eru alltof fljót að detta í það að tala ensku við mig. Mér finnst samt ekki alveg nógu gaman í þessum skóla, saumar og þannig vesen er bara ekki ég. Ég veit samt ekki hvort að ég nenni að vera að breyta eitthvað, enda gera Ítalir svo óskaplega mikið vesen úr hinum minnstu málum, og svo eru krakkarnir í saumahópnum líka fínir og það skiptir mig miklu meira máli.


Ítalskan er aftur á móti ekki alveg að gera sig finnst mér, ég skil samt allt sem er sagt við mig en það er bara vandamál að koma einhverjum orðum út úr sér til baka. Það versta er samt þegar manni finnst maður vera að tala ítölsku, en fólk skilur ekki hvað maður er að segja. Það er hroðalegt.
Mér finnst AFS gera of miklar kröfur til ítölskukunnáttunnar, auðvitað er spænskumælandi og rennreipandi í frönsku fljótara að læra ítölsku en íslendingur! Þau eru heldur ekki búin að redda mér ítölskunámsbókinni ENNÞÁ, þannig að við hverju búast þau?
Hinsvegar gerir skólinn alltof litlar kröfur til mín, ég verð stundum alveg drullupirruð þegar kennararnir tala við mig á bjagaðri ensku  og öskrar svo yfir bekkinn "hvernig segir maður '....' á ensku?" fyrir annað hvort orð, í staðinn fyrir að tala við mig á þessu blessaða tungumáli sem ég er að læra.


          Um daginn var ég svo í ensku með 4F, sem er tískuhópurinn af 4B. (Það er búið að troða mér í allnokkra enskutíma hérna, og ég sver að enskunni minni fer bara versnandi.) Þau voru að gera einhverja hlustunaræfingu, svo að ég sat bara og teiknaði því að ég þarf ekki að taka þátt. Svo þegar hlustunaræfingin var búin byrjaði kennarinn eitthvað að tala á ensku, og ég leit upp því að það er all óvenjulegt að þess enskukennari tali ensku. Furðulegt ekki satt? Kennarinn spurði hvort að ég vildi vera með í "umræðunni"(þau voru að læra hvernig á að tala um veðrið, alveg satt) en ég afþakkaði bara pent. Þá byrjaði kennarinn að tala um mig á ítölsku við krakkanna. Hvað ég væri hugrökk að þora þessu, hvað þetta væri erfitt fyrir mig og hversu mikið ég saknaði allra á Íslandi, það sæist bara ekki á mér því að ég væri norður-evrópskt og fólk frá Skandinavíu hefði svo mikla sjálfsstjórn og sýndi tilfinningar sínar ekki. Þetta er auðvitað satt, en aldrei hef ég sagt neitt við þessa konu um það hvernig mér líður, og mér fannst líka í meira lagi dónalegt að hún væri að tala um mig og mitt persónulega líf við þessa krakka, íslenskur kennari myndi aldrei gera eitthvað svona. Það besta var samt að þau héldu í alvörunni að ég skildi ekki hvað þau væru að tala um, held að jafnvel þótt að ég hefði ekki skilið allt, hefði ég samt nú fundið á mér að þau væru að tala um mig.  Og hvaðan fékk hún þetta um að norðurlandabúar sýndu aldrei tilfinningar sínar?

Lífið gengur bara sinn vanagang. Ítölskutímar og tjill í Cesena með hinum skiptinema-krökkunum, og svo bara venjulegt líf í hérna Forlí, krakkarnir hérna gera aldrei neitt á daginn og hanga bara heima hjá sér og læra eftir skóla svo að mér hefur ekki tekist oft að draga krakkana með mér að gera eitthvað. Það er orðið vel kalt hérna og á víst að fara að snjóa á sunnudaginn. Það er kominn smá jólafílingur í mig, þótt að það sé nú alls ekki jólalegt hérna, eiginlega engar jólaskreytingar komnar og bara ansalegt að hafa lauf á trjánum svona í lok nóvember! Ég bíð allavega spennt eftir pakkanum frá mömmu og pabba með húfunni og vettlingunum.. og íslenska namminu!

xoxo Eyrún
 SEM ER AÐ FARA Á CARNEVALE Í FENEYJUM Í FEBRÚAR!


 



13 comments:

  1. JEIJ Blogg!! :D Allt fyrir ástina (eins og Páll Óskar segir hahaha)

    Iss.. mér finnst þú bara góð að skilja nánast allt sem talað er, hitt kemur fljótt - það er ég viss um :)

    Ég elska hvað það er gaman hjá þér og hvað þú skemmtir þér vel (það virðist allavega vera það haha. Og líka hvað bloggin þín eru skemmtileg! :D


    Knús og kossar til þín :*

    P.s Ég fór með pakkann til þín í póst áðan - hann kemur með flugpósti :)
    Vona að hann skili sér heill á húfi!

    ReplyDelete
  2. Loksins, er búin ad kíkja hérna á hverjum degi og ekkert blogg ;D
    En tetta med tilfinningar hjá nordurlandabúum er í raun satt ef madur midar vid tessar latínotjódir, ég veit ekki hversu oft fólk hefur kallad mig "kalda" útaf tví ad ég fór ekki ad grenja yfir raedu hjá einhverjum eda útaf tví ad ég tala ekki um tilfinningar mínar vid alla.
    En gott ad tú skemmtir tér haltu tví áfram, tungumálid kemur á endanum ;D hehe

    ReplyDelete
  3. Víj! :D Ekki hætta að blogga Eyja mín! Það er svo gaman að lesa blogginn þín, að þú ert skemmtilegri penni en Tobba Marinós! En hvað er þessi Bella að bulla með að Norðurlanda-búar sýni aldrei tilfinningar sínar! HAHA reeyndar ef maður ber sig við Ítalana þá kannski skilur maður þetta, en við erum nú ekki alveg með íshjarta!
    Dragðu svo þessa krakka með þér á veiðar! Ég hlakka til að heyra fabíóa sögurnar :D

    Knúúúsi á þig, Sólveig :*

    ReplyDelete
  4. ÓKEY ERTU FKN SERIOUSLY AÐ FARA Á KARNIVAL Í FENEYJUM? Ó. Mæ. God.

    Öfund. >.<

    ReplyDelete
  5. the teacher is right...hehe ég verð nu að segja það .... en ótruuulega gaman að vita hvað þér gengur vel og svona! og að fá n´t blogg! ætti að blogga oftar! :* saaaaakn

    - Jovana (L)

    ReplyDelete
  6. hahaha þú ert æðisleg, þú mátt ekki hætta að blogga það er alltof gaman að lesa þetta ástin.
    Sakna þín svoo mikið eyrún mín! <3 ;*
    -Ísfold Rán

    ReplyDelete
  7. hahah þú ert nú meiri mörðurinn að sýna ekki tilfinningar þínar :O .. ég væri grenjandi alla daga útí eitt eða bara tjá ást mína á öllu! .. neei okei, ekki alveg :p
    en það er virkilega gott að þú skemmtir þér vel þarna! og það er líka eins gott fyrir þig að þú gerir það vegna þess að það er neflilega ekkert skemmtilegt að sakna þín svona mikið !! :O
    les alltaf bloggin þín jafnvel þótt ég commenti ekki alltaf :$ .. en það er satt!, þú ert betri penni en sjálf tobba marínós HAH!
    elska þig, sakna þín <3
    -Elsa Hrönn

    ReplyDelete
  8. ég les þau lika alltaf þótt ég commenti ekki!
    -montana

    ReplyDelete
  9. Ævintýri - og þú ert huguð!
    Og mikið öfundað ég þig af að fara á karnval í Feneyjum.
    Afasystirin.
    ps. Myndin efst á blogginu er alveg meiriháttar flott.
    pps. Ekki hafa áhyggjur af tungumálinu, fyrst þú ert farin að skilja svona mikið þá losnar um tunguhaftið allt í einu.

    ReplyDelete
  10. blessuð
    ætla bara að kvitta fyrir innlitið:) gaman að lesa bloggin þín :)
    Gangi þér vel!

    -Karen Þóra

    ReplyDelete
  11. Stelpur, 9 dagar á milli blogga.. ég er ekki hætt haha!
    Montana, hver? :)

    Knús!

    ReplyDelete
  12. haha gvuð eyrun, hannah montana:$:$

    ReplyDelete