Nei bíddu, það stenst bara ekki. Þetta hefur verið svo miklu styttra, en samt svo miklu lengra. Tíminn líður afskaplega furðulega hérna. Það virðist hafa verið fyrir mörgum árum sem ég fór niður í MB og knúsaði alla bless, og heil eilífð síðan ég og Elín gistum saman síðustu nóttina og gláptum á Sex and the City áður en við fórum út á flugvöll þar sem að ég kvaddi hana, mömmu og pabba. Samt hefur tíminn hérna liðið svo hratt. Dagarnir eru langir, en vikurnar fljúga áfram, það virðist alltaf vera komin ný vika áður en hin er hálfnuð.
Þetta eru búnir að vera yndislegir tveir mánuðir, en ég ætla ekki að ljúga og segja að þetta hafi ekki verið erfitt stundum. Ég er samt á heildina litið svo ótrúlega hamingjusöm hérna, og mér finnst ég hafa breyst og þroskast heilann helling þennan stutta tíma. Hérna tek ég lífinu með mun meiri ró en á Íslandi, og tek hlutunum bara eins og þeir eru. Er ekkert að æsa mig neitt yfir hlutum sem ég get hvort eð ekki breytt. Íslenskan er orðin mjög slæm, og ég á mestu vandræðum með að skrifa þessa blessuðu færslu og hugsa núna á ensku-dönsku-ítölsku graut.
Það er samt ansi margt búið að drífa á daga mína síðan ég kvaddi ykkur seinast og þá ber helst að nefna Halloween og ferðina til San Marínó. Annars eru venjulegir dagar hérna oftast mesta ævintýrið. Lífið hérna er ekki ennþá orðið raunverulegt, þetta er eins og draumur. Yndislegur og spennandi draumur með nýjum ævintýrum og upplifunum á hverjum degi.
Síðasta laugardag átti ég yndislegan dag. Eins og svo oft áður þegar ég hef ekkert að gera fór ég niður í miðbæ, já bara ein, og fór í búðir. Ég elska mannlífið hérna, og get setið endalaust fyrir utan einhvern barinn með ljúffengann cappuccino, crepé eða gelato og virða fyrir mér fólkið. Ég elska líka lyktirnar hérna, á morgnanna er fersk skógar- og haust/vetrarlykt í loftinu og þegar fer að líða á daginn fyllist allt af guðdómlegri matarlykt, enda ekki lítið lagt í eldamennskuna hérna. Á kvöldin er svo skringileg en engu að síður góð reykjarlykt í loftinu. Svo er líka gaman að segja frá því að það er bar (allir staðir hér eru bar) rétt hjá húsinu mínu sem ég labba allaf framhjá þegar ég fer í miðbæinn, þar sem að hópur af gömlum, krúttlegum köllum sitja fyrir utan hvern einasta dag, allan liðlangan daginn. Þetta eru týpískir ítalkir gamlir menn í hvítum skyrtum og með axlabönd, reykjandi, kallandi og drekkandi kaffi. Við erum orðnir góðir félagar, heilsa þeim alltaf og spjalla við þá þegar ég á leið hjá. Á mín ítölsku blótsyrði algjörlega þessum köllum að þakka. Ég verslaði kannski ögn mikið þennan daginn eins og gömlu kallarnir bentu mér nú reyndar á. Keypti mér 2 gallabuxur, Ugg's, háa hæla, bol, inniskó, hlý náttföt, ilmvatn og slatta af sokkum og nærfötum. Þetta er nú kannski ekki frá sögu færandi nema það að með því að fjárfesta í þessum blessuðu náttfötum er ég búin að leysa eina af mínum helstu krísum hérna, eiginlega tvær. Málið er að hér er allt morandi í fötum með vinsælum teiknimyndafígúrum, og disney brjálæðingurinn ég á oft erfitt með mig. En sama hversu vinsælt þetta er hér, og sama hversu krúttlegt þetta er, mun ég aldrei yfirgefa húsið klædd í föt sem eiga heima á leikskólabörnum. Þessvegna keypti ég mér þessi fínu Bamba náttföt og er hæstánægð með þau.
Daginn eftir fór ég ásamst fósturforeldrum mínum til San Marínó. En fyrir þá sem ekki vita, er San Marínó smáríki umlukið Ítalíu og einn fallegasti staður sem ég hef komið til. San Marínó er í í Appennínafjöllunum (litlu Ölpunum), á mörkum Emilía-Romanga og Marke og umlykur fjallið Monte Titano. Öll byggðin er í hlíðum og á toppi fjallsins, eintómur halli hér á ferð. Landið er heilir 61 km2 og íbúarnir um 30.000, ekki amalegt. Þetta er samt mjög merkilegt land, eitt elsta lýðveldi heims, stofnað árið 301 af heilögum Marínusi(surprise, surprise) sem var steinútskurðarmaðursmiður. En nóg af ókeypis fróðleik í boði Eyrúnar. Ótrúlega fallegt ríki, mikið af skrítnum og spennandi litlum búðum og ég smakkaði heimsins bestu pítsu. Góður dagur og ég mæli hiklaust með því fyrir alla að kíkja til San Marínó, nema auðvitað ef þú krefst þess að fara hjólandi allra þinna ferða, þá myndi ég sleppa því.
Við vorum líka svo heppin að hitta á gómsæta súkkulaðihátíð þar í landi, þar sem ég hitti sætan strák sem er í súkkulaðiskóla(að læra að búa til súkkulaði væntanlega) og er að læra að vera bakari. Besti parturinn var samt að hann er frá Sikiley, það fannst fósturpabba mínum allavega. Ótrúlegt hvað allir í kringum mig virðast vera frá Sikiley. Mér fannst samt best þegar hann bjó til handa mér eitthvert ítalskt sætabrauð, sýndi mér um og keypti handa mér heitt kakó og súkkulaði. Ítalskir strákar eru alveg með þetta.
Nenni ekki meiru og læt myndirnar tala.
Þangað til næst.
xoxo, Eyrún veika.
| Café latte með nutella er það besta :) |
| Lorin(Belgía), ég og Kristiana(Lettland) |
| San Marino |
| Rosalega falleg kirkja í San Marinó, en það var bannað að taka myndir inn í henni og ég þorði ekki að stelast. :) |
| San Marínó og Ítalía í fjarska |
| Fósturforeldrar mínir |
| Með Adríahaf í bakrunn :) |
| Fallegt! |
| Þessi súkkulaðihátíð var alveg að gera sig |
Ein krúsíal spurning: Fékkstu númerið hjá sæta stráknum?
ReplyDeleteKossar og knús
Inga
aww veist ekki hversu mikið ég sakna þín ítalska eyrún sem varst með nokkrar stafsetningavillur í þessu bloggi og ég hélt að það myndi ekki gerast en guð hvað ég sakna þín mikið og það er nú gott að þú sért hamingjusömu og sért að skemmta þér vel :D
ReplyDeleteHaltu þessu áfram elskan :*
Kossar og knúsar á þig <3
Anna Margrét
Gaman að lesa bloggið þitt og skoða myndirnar.
ReplyDeleteÞú lítur svo vel út krúttið mitt.
Knús á þig sæta mín
Kv. Anna sys
Ég hef bara eitt að segja: MIG LANGAR AÐ FARA Í ÞESSA SÚKKULAÐIBÚÐ!
ReplyDeleteOg já, það er eins gott að þú hafir fengið númerið hjá þessum gaur!
Allavega, alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt :)
Kossar og knús til þín :*
Ohh afhverju er ekki svona súkkulaðibúð hérna heima á Íslandi, mig langar alltaf meira og meira til Ítalíu í hvert skipti sem ég les bloggið hjá þér.
ReplyDeleteKv. Bobba :)
Æi, ertu eitthvað lasin. Var það ekki um þessa helgi sem þú ætlaðir til Florens?
ReplyDeletema
Ein spurning: eru skórnir líka úr súkkulaði? O.o
ReplyDeleteAnnars er ég klárlega að öfunda þig af þessari súkkulaðihátíð og bakaradrengnum. (Pun intended.)
Auðvitað fékk ég númerið stelpur!
ReplyDeleteFór til Flórens í gær mamma :)
Knús og kossar á ykkur :*