Jibbí, Eyrún komin með nýtt blogg!
Oh, ég er svo dugleg. Annað en þið. Ég er ekki sátt með komment-fjöldann, þetta er ekki flókið.. og það er ekki eins og þið hafið eitthvað betra að gera, sérstaklega þið í MB sem komist ekki lengur á facebook!
Allora, í síðustu viku fór ég bara í skólann mánudag og þriðjudag því að ég var eitthvað slöpp. Bara kalt, máttlaus og illt í maganum og hausnum. Ég kenni þreytu og prótín/kalk skort í matnum hérna algjörlega um öll mín veikindi hér, enda er ég næstum því grænmetisætan, þekkt sem einhver sú mesta kjötæta sem fyrirfinnst hér um slóðir. Mig langar að vita hvernig nokkrir sem ég þekki myndu standa sig hér.. Mér fannst þau gera full mikið mál úr þessu þegar þau vildu að ég færi til læknis, en alltílagi, Ítalir eru svoldið pillusjúkir og paranoid með svona veikindi. Þá var búið að hringja í læknirinn daginn áður og búið að banna mér að borða nokkurn skapaðann hlut, ég átti bara að gjöra svo vel að drekka te. Þeir eru svoldið háðir læknunum sínum þessir Ítalar.
Fór til læknisins, en fósturmamma mín var ekki alveg nógu sátt með hvað hún gerði lítið úr málinu, því að hún sagði mér að fara heim og hvíla mig(og ekki borða neitt), og ef að mér væri ennþá illt á morgun ætti ég að koma aftur( og ekki borða neitt) svo að hún ákvað að nú færum við á spítala með mig. Mamma mia.. það fannst mér nú fullmikið af hinu góða. Þar var ég sett í hjólastól og svo látin bíða í klst. eftir að læknir þar kom og skoðaði mig. Hann vildi nú bara senda mig í uppskurð, því að hann hélt að botnlanginn í mér væri að springa, en þá kom hlaupandi inn annað læknir sem hélt að ég væri ólétt. Þeir rifust þarna eitthvað en á endanum var bara tekið blóðsýni(klárir þessir Ítalir) og ég látin bíða annan klukkutíma eftir niðurstöðunum úr þeim með næringu í æð. Það kom auðvitað ekkert alvarlegt í ljós, bara einhver lítil næring í gangi (sem að ég vissi auðvitað) og meiri næringu skellt í mann og einhverri rosalegri verkjalyfjablöndu. Það tók einn og hálfann tíma og svo mátti ég fara heim, og komið yfir miðnætti.
Aldrei verða veik á Ítalíu, börnin góð.
Eftir það tóku bara við dagar í afslöppun heima, og ég gerði bara nákvæmlega ekki neitt. Sem var reyndar afskaplega þægilegt, en hefði verið skemmtilegra ef ég hefði getað mönsað eitthvað á meðan.
Fór svo til Flórens á sunnudeginum með hinum krökkunum frá AFS, stalst til að borða.. og það var bara allt í lagi. Ég varð reyndar mjög pirruð þegar það var "votað out" að fara á Uffizi safnið, sem er ótrúlega frægt safn í Flórens með mörgum af frægustu málverkum heims. En engu að síður yndislegur dagur með yndislegu fólki, og Flórens er svo sannarlega uppáhaldsborgin mín í Ítalíu hingað til!
Það er allt svo fallegt þar, byggingarnar, kirkjurnar, stytturnar og listaverkin sem eru út um allt í borginni. Svo skemmdi nú ekki að þarna var Disneybúð, Zara og H&M, en af því að það var sunnudagur var bara Disneybúðin opin og ég keypti nokkrar jólagjafir þar. Þetta var líka síðasti dagur Kristiönu, einni af bestu vinkonum mínum hér, í Ítalíu. Hún var bara í þriggja mánaða prógrammi og fór heim tveimur vikum fyrr því að amma hennar er veik. Það var ótrúlega erfitt að kveðja hana, og mér finnst svo sorglegt að vita að ég hef svo stuttann tíma með öllu þessu yndislega fólki sem að ég hef kynnst hérna. Ælta ekki að hugsa um það. :)
Annars er allt gott að frétta af mér. Fjölskyldan er yndisleg, skólinn er hundleiðilegur en krakkarnir frábærir, orðið frekar kalt hérna en það koma þvílíkir blíðudagar inn á milli. Allt eins og það á að vera.
Kossar og knús
xoxo Eyrún
 |
| Krúttlegasta fólkið mitt :) |
 |
| Flórens er ekkert slor |
|
 |
| Falleg stytta, og venjulega dúfa eða tvær á toppnum |
 |
| Sprellaborgin! |
 |
| Eyrún sátt með "Simbastyttunni" |
 |
| Ef maður læsir lás þarna með vini sínum/maka þá er maður að læsa sambandinu og þá mun það aldrei slitna :) |
 |
| Ponta Vecchia. (Gamla brú) |
 |
| Bella Firenze! |
 |
| Krúttlur :) |
 |
| Elsku Kristiana sem er farin heim til Lettlands |
 |
| Francisco minn og ég :) |
 |
| Mjög líklega hinn eini sanni Fagri Blakkur, það er ég viss um. |
æji láttu þér batna mús ;*
ReplyDelete- selma :)
geeeðveikar myndir! :D
ReplyDeletehaha og ekkert smá fyndin frásögnin af spítalanum!
hefuru ekki enþá séð skakka turninn í Pisa :D ? Það er geðveikur staður :D eða Feneyjar ? Napolí ? Mér fannst Napolí frekar svakalegur staður og maður gat horft á árekstrana... það voru kannski 2 akgreinar en það voru svona 4 bílar og svo vepspur á þeim og allir að reina að vera á undan... en annars voru alveg öll torgin glæsileg :p En ég sá að þú skrifaðir allora ;D finnst þér það orð ekki full notað þarna :p ? allavegana skólanum sem ég var í var alltaf "allora ragazzi " :D
ReplyDelete- María Ester
HAHAHA! Beint á spítala bara - og í uppskurð!
ReplyDeleteHefðu læknar hér ekki hlegið að manni hefði mamma manns mætt með mann upp á spítala: Dóttur minni er illt í maganum, hausnum og er slöpp!!
Mér finnst samt eiginlega best að þú hafir ekki mátt borða neitt! Hahaha..
En gott að allt gengur sinn vanagang! :)
KNús og KNossar :*
Takk Selma mín :) :*
ReplyDeleteÞóra, mér fannst þetta líka svoldið fyndið. Átti í mesta basli með sjálfa mig, haha.
María: Allora er allof mikið notað orð!
Hef ekki farið til Pisa, Feneyja eða Napoli ennþá. Svoldið vesen að ferðast þegar maður er bara í fríi á sunnudögum! En ég fer til Feneyja í Febrúar á Carnevale, og ætla að reyna að fara áður, svona þegar það er ekki allt fullt af túristum.
Pisa er svo alltaf planið, og sömuleiðis Napólí því að maður verður nú eiginlega að smakka Napólípizzu! En ég hef nú 8 mánuði til þess að heimsækja allt og eftir áramót má ég líka ferðast ein, þannig að ég og tyrkneskur vinur minn ætlum að taka hringinn bara!
Guðríður: Beint á skurðborðið bara, það sakar ekki að gramsa smá! Mér fannst einmitt best "Já, sko.. þú ert ekki með mikla næringu í blóðinu, svo að við ætlum að gefa þér næringu í æð.. en þú mátt ekkert borða í 4 daga í viðbót!"
GRAZIE!
Kossar og knús til ykkar allra! :*
Ertu búin að fá pakkann?
ReplyDeleteEf hann er ekki kominn til þín núna færð þú ekki jólapakkann fyrr en það fer að nálgast páska.
En ég vona að þú megir borða þegar pakkinn kemur því ég veit að þú getur ekki staðist það sem í honum er.
Ma
Skemmtilegar myndir :) Ég hef líka komið til Flórens, en stoppaði að vísu bara stutt þar.
ReplyDeleteVona þú sért búin að jafna þig núna og getir hætt að neyta fljótandi vökva og næringar í æð.
guð minn góður Ítalir eru greinilega eitthvað móðursjúkir greyjin hahaha en látu þér bata lasarusinn minn það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið hjá þér ástarpungurinn minn :D farðu vel með þig elskan <3
ReplyDeletePakkinn er ekki kominn ennþá, mamma. Og ég gleymdi kannski að taka það fram en það er allt í fínasta lagi með mig og ég borða bara og borða! :)
ReplyDeleteKnús!
Mér finnst orðið svo langt síðan ég sendi pakkann. Að minnsta kosti 3 vikur. Vonandi hefur hann ekki týnst.
ReplyDeleteEn ég er himinglöð með að þér er batnað.
Ma
Ú fæ ég jólagjöf? :O Ókey, kannski ekki. xD En þessi jól verða ótrúlega fötluð. Eyrúnar-laus jól? Does - not - compute *breaks down*
ReplyDeleteEr enn enginn pakki kominn?
ReplyDeleteÆj Védís.. við skulum eiga góð jól saman næst! :*
ReplyDeleteOg nei, pakkinn er ekki kominn. Mig er virkilega farið að langa í nammið samt..