![]() |
Elsku þið.
Það er svo gott að blogga, það hjálpar manni að muna og það er rosalega gott að skrifa niður tilfinningar sínar. Svo verður svo gaman að lesa þetta seinna! Mæli endilega með því að blogga, eða bara skrifa í dagbók, ég geri bæði.
Nú er komin aðventa og skítakuldi. Hvað er þetta með Ítali og hafa kaldara inn í húsunum en úti?
Í gær fagnaði ég fyrsta í aðventu með því að fara til Ravenna með skiptinemum frá Bologna. Það rigndi allann daginn í Ravenna meðan alls staðar annarstaðar á Norður-Ítalíu, þar sem að ljúfur snjór sveif mjúklega niður. Ég og danskur vinur minn vorum mjög vonsvikin yfir því að þurfa að hlaupa á milli kirkja og grafhýsa í mígandi regni í Ravenna í staðinn fyrir að búa til snjóengla og snjóbolta. Engu að síður var þetta frábær dagur og alltaf gaman að kynnast fleiri skiptinemum, og ekki skemmir fyrir hvað Ravenna er falleg borg, líka í hellidembu.
Annars hefur heldur mikið drifið á daga mína sem síðan ég skrifaði seinast. Mandarínu- tímabilið er gengið í garð mér til mikillar óhamingju, mikið eru þetta ógeðslegir ávextir. Á laugardaginn snjóaði í nokkrar mínútur, og Lorin og hinir krakkarnir úr 3 mánaða prógramminu fóru heim. Ég lærði að búa til alvöru lasanja, en finnst það bara alveg jafn vont og hitt. Ítölskuskólinn minn í Forlí er búinn að vera í pásu og frír tími sem ég hef ekkert að gera við streymir inn. Ég er að ná tökum í saumavélaskrímslinu í skólanum og ítalskan er að taka stakkaskiptum. Nú þarf ég bara að kenna ítölskum unglingum að það er hægt að gera eitthvað á virkum dögum og þá get ég eignast líf.
En yfir að alvarlegri málum, því að ég er án trúnaðarmanns núna. Elsku verðandi- og núverandi skiptinemar, aldrei aldrei vera án trúnaðarmanns. Trúnaðarmaðurinn er nefnilega ekki, þó að nafnið gefi það til kynna, manneskjan sem að þú hringir í til að láta hugga þig. Þetta er manneskjan sem sér um öll þín mál og er alltaf 110% til staðar fyrir þig, og auðvitað líka þegar maður þarf að gráta smá. Carlotta, sem var trúnaðarmaðurinn minn, er núna í háskóla í Bologna en hún og mamma hennar, Clara sem er AFS sjálfboðaliði, hafa verið alveg yndislegar. Clara og maðurinn hennar keyrðu mig t.d. til Ravenna í gær, Carlotta er búin að bjóða mér til Bologna til sín og þau eru búin að bjóða mér í salami-gerð(sláturgerð einhver?) og upp í fjöll. Ef að fjölskyldan mín væri ekki svona yndisleg, myndi ég gjarnan vilja búa hjá þeim!
Clara er yfir AFS Forlí, en af því að ég er sú eina í Forlí tilheyri ég AFS Cesena, ég skildi þetta ekki fullkomnlega en ég held að það sé ástæðan fyrir því að Clara má ekki vera sjálfboðaliðinn minn lengur (hún var það í smátíma). Mér finnst AFS Cesena ekkert hugsa um mig, og allt sem þau skipuleggja fyrir skiptinemana er gert án þess að lata mig vita eða taka tillit þess að ég þurfi að taka lest heim svo að viðburðirnir eru oft seint á kvöldin og langt frá lestarstöðinni, og aldrei býðst neinn til að skutla mér á lestarstöðina eða það sem betra væri, að keyra mig þessa litlu vegalengd sem er á milli Forlí og Cesena. Þannig að aldrei fær aumingja ég að vera með, og hef misst af ansi mörgum skemmtilegum kvöldum, t.d. kveðjuboð fyrir Lorin! Clara bauð mér til Rómar í síðustu viku, en AFS Cesena bannaði það, því að hún ætlaði bara að bjóða mér en ekki öllum frá Cesena. Erum við að ræða hræsnina í þessu fólki? Þetta er eins og að banna hinum krökkunum að fara í ferð með fjölskyldum sínum eða vinum fjölskyldunnar því að þau "taka ekki hina með".
Ég er orðin nokkuð sammála fósturpabba um að ég hefði átt að tilheyra AFS Bologna í staðinn eins og stóð til fyrst, sérstaklega eftir að hafa hitt krakkana þar.
Afhverju enda bloggin mín alltaf á bitru nótunum?
xoxo, Júrna.
| Bologna kiddós |
![]() |
| Noregur - Dómíníska lýðveldið - Ísland |
| Danmörk- Kólumbía- Ísland - Bólivía - Finnland- Noregur - BNA - Þýskaland - Dóminíska lýðveldið. |
| Dante félagi |
| Gröfin hans Dante, kósý |
| Fiskar í kirkjunni |
![]() |
| Kirkjur og grafhýsi eru náttúrulega frábærir staðir fyrir myndatökur |
| Því að ég er svo mikil skvísa.. |



ert þú sætust eða hvað :O ?
ReplyDeleteen vá bjánalegt að þú megir ekki fara til Róm afþví að hinir fá ekki að fara :''D þetta er bara eins og á leikskóla eða e'ð þannig verður að deila með öllum :D hahaha en knús á þig elskan mín :* <3
Váa þar samt að segja þér það að það vanntaði þig í gær þegar það var kveikt á jólatrénu :c vegna þess að við vorum alltaf saman þegar það er kveikt á því :'( en það er alltaf næsta ár :D hahaha elska þig sætust mín <3
elskar snjóinn jafn mikið heyrist mér :)
ReplyDeleteenn ertu búinn að fá pakkan frá okkur stelpunum?
knús;*
Margrét
Ef þú ert ekki með trúnaðarmann þá verður þú að hafa samband við Lindu hjá AFS held ég eða biðja okkur að gera það.
ReplyDeleteVá, hvað eru flottar skreytingar í kirkjunni. Eru þetta ekki gamlar skreytingar?
Ég beið svo eftir að vita meira um lasagna og mandrínur eins og titillinn lofaði.
ma
Fáránlegt að þú hafir ekki mátt fara til Róm af því að hún bauð ekki öllum hinum. Bara heimskulegt!
ReplyDeleteEn þú verður nú að fá nýjan trúnaðarmann, annað gengur nú ekki!
En haltu nú áfram að skemmta þér vel og dragðu þessa Ítali með þér að tjilla eftir skóla! haha :)
Knús og kossar :*
Gaman að lesa bloggin þin og fylgjast með þér Eyrún! :) vildi skilja eftir mig smá comment svona einu sinni :) en bara gangi þér allt vel í haginn og hafðu það rosa gott! vonandi fer allt vel með trúnaðamanninn þinn :-)
ReplyDeleteknúsknús Birna Ósk :*
Mamma. Það er verið að leita að trúnaðarmanni held ég. Ég hef það samt alveg gott með Clöru og Carlottu, þær eru betri en flestir trúnaðarmenn held ég. :) Þetta er eitthvað rosalega einstakar skreytingar (eins og allt hérna) og er einhver stíll sem er frá Istanbúl, s.s. mósaík. Rosa flott.
ReplyDeleteMargrét, pakkinn er ekki kominn en ég læt þig vita strax og hann kemur!
Anna, ég á þig pantaða þegar það verður kveikt á jólatrénu næst! Mmm mig langar í jólaepli!
Knús á ykkur :*
Mér finnst alltaf svo gamann að skoða skiptinemabloggg og sjá hvað það er gaman hjá öllum!
ReplyDeleteAnnars var þetta flott blogg. Sá að þú skrifaðir hjá Rakeli "komment eru besti í heimi" svo ég ákvað að kvitta fyrir komuna;)
Vonandi hefuru það gott úti:)
Kveðja frá Sviss
ójá Eyrún þétt plan hjá okkur þegar þú kemur heim :D
ReplyDeleteég vil sjá nýtt blogg Eyrún :D
ReplyDelete