Thursday, November 4, 2010

Munurinn á MB og ITAS.

Ciao tutti.
Hér sit ég ein heima kl. hálf 9 um morguninn, og ákvað að nú væri kominn tími til að koma með smá öðruvísi blogg. Afhverju? Nú, skólinn byrjar ekki fyrr en kl. 10 í dag, eitthvað sem ég komst af fyrir um hálftíma síðan þegar ég mætti upp í skóla. Týpísk Eyrún.
Sá þetta á bloggi hjá einhverjum öðrum skiptinema, en ég get ómögulega munað hverjum. Ég ætla allavega ekki að eigna mér heiðurinn af því að hafa komið með þessa hugmynd.



Munurinn á MB OG ITAS.
  • Í MB kemst maður í gegnum árið með ágætis einkunnir með að gera verkefnin í tímum (eða láta senda sér þau) og gera nokkrar sætar power-point kynningar.
  • Í ITAS er maður í vondum málum ef maður skilar ekki heimavinnunni (þú fellur ef þú skilar henni ekki 4x) og allir vinna á fullu í tíma. 

  • Í MB eru gardínurnar fyrir innan gluggann.
  • Í ITAS eru þær fyrir utan..
 
  • Í MB þekkja kennararnir þig og þú myndir heilsa þeim ef þú myndir hitta þá á förnum vegi.
  • Í ITAS eru það eftirnöfn.. ef að kennarinn veit yfir höfuð hvað þú heitir.  
 
  • Í MB vinnum við öll okkar verkefni í tölvu, nema kannski í stærðfræði.
  • Í ITAS læra þau að búa til möppur og hægri-klikka í "upplýsingatækni".
 
  • Í MB eyðum við fúlgu fjár í að kaupa nýjar bækur fyrir hverja önn.
  • Í ITAS hafa þau verið með sömu bækurnar í 4 ár.
 
  • Í MB þykir það allt í lagi að sjúga upp í nefið, en engum myndi detta í hug að draga fram vasaklútinn og láta vaða hressilega í tíma.
  • Í ITAS kyppir sér enginn upp snýtukórinn í tíma, en það er argasti dónaskapur að sjúfa upp í nefið.
 
  • Í MB erum við með venjulegar tússtöflur og skjávarpa. Krítartöflur er eitthvað sem fólk man kannski eftir úr 1.bekk.
  • Í ITAS er beygluð tússtafla og enginn túss. Aftur á móti er þar ævaforn krítartafla sem kennarnir halda mikið upp á með tilheyrandi ískri og krítarryki út um allt.
 
  • Í MB er okkur frjálst að yfirgefa skólalóðina þegar okkur sýnist, og í hádeginu getum við farið í samkaup/olís/hyrnunna, heim til okkar eða fengið heitann mat hjá Brynju í hádeginu.
  • Í ITAS er lítil sjoppa sem selur snakk, nammi, gos og brauð. Að yfirgefa skólalóðina er harðbannað og maður yrði líklega rekinn fyrir að yfirgefa hana á skólatíma.
 
  • Í MB geta dagarnir verið mjög langir, frá 8:20-17:00, en það eru alltaf pásur á milli tíma, hádegismatur og oftar en ekki nokkrar eyður.
  • Í ITAS byrjar skólinn kl. 8:00 og er búinn annað hvort kl. 13, eða 14 á löngum dögum. Það er ein 10. mínútna pása, og skóli á laugardögum.
 
  • Í MB þurfa reykingamenn að gjöra svo vel að yfirgefa skólalóðina til að reykja. Þeir þurfa því að hoppa yfir á samkaupsplanið í hvaða veðri sem er til að fá nikótín-skammtinn sinn.
  • Í ITAS hafa krakkarnir sígarettuna bak við eyrað í tíma, og stinga henni í munnvikið þegar líða fer á tímann. Svo hópast allur fjöldinn rétt fyrir utan dyrnar og kveikja í, nú eða labba hring á íþróttavellinum á meðan. Það er búið að byggja skjólvegg fyrir þau, og það myndast mengunarský af reyk eftir pásuna.
 
  • Í MB eru oft frekar mikil læti í tíma, mikið spjallað og mikið gaman, en oftast vinnufriður.
  • Í ITAS eru 100x mmeiri læti, bæði í nemendunum sem blaðra og rífast, og kennurinum sem öskrar til að reyna yfirgnæfa lætin í nemendunum.
 
  • Í MB er sama stundartaflan alla önnina - og ef einhverjar breytingar eru gerðar er það stórmál.
  • Í ITAS breytist stundartaflan næstum því í hverri viku. 
 
  • Í MB höfum við matsal með borðum og stólum, borð og sófa á ganginum og nemendaaðstöðu niðri.
  • Í ITAS eru tveir bekkir til að sitja á..
 
  • Í MB er nú kannski ekki mikið félagslíf, en það er allavega alltaf eitthvað um að vera.
  • Í ITAS hafa þau ekki einu sinni heyrt orðin "nemendafélag" og "félagslíf".
 
  • Í MB færðu sms, eða tilkynningu á námskjá ef að tíminn fellur niður. 
  • Í ITAS færðu blað með heim daginn áður "töskupóst" sem að foreldrar þínir verða að skrifa undir. Ef þú varst ekki í tímanum, þá grey þú.


xoxo, Eyrún.

5 comments:

  1. Vá hvað þetta er allt öðruvísi þarna á Ítalíunni! :)
    Þú átt svo sannarlega eftir að kunna að meta elsku MB með sínum verkefnum og kaflaprófum þegar þú kemur heim hahaha!

    En ég get svo sannarlega sagt þér það að við Inga (og hinir í stjórninni) erum að brillera í ár og erum búin að gera fullt skemmtilegt í vetur og erum með fullt skemmtilegt planað! Aldrei verið jafn mikið og skemmtilegt félagslíf - enda við svo skemmtilegar sjáðu til! Haha =)
    Við ætlum meira að segja að vera með gamaldags diskótek í anda gömlu góðu Óðals diskótekana í næstu viku hahaha! :D

    En allavega, gaman að lesa þetta blogg um muninn á milli skólanna :)
    Hafðu það gott og njóttu þín vel krútta :*

    Knús&kossar :*

    ReplyDelete
  2. HAHAHA, mátt alveg koma til baka með snítið í tímum. Mjög sniðugt blogg annars.
    Hvar borðiði þá ef að það er aðeins 2 bekkir?

    Gaman að geta lesið.

    Hafðu það gott,
    Mdan

    ReplyDelete
  3. oooo mig langar í MB:(
    hannadora

    ReplyDelete
  4. HAHA! þetta er snilld.
    eru þau með svona pabba vasaklút:´)?
    greinilega mjög tölvuheft, og "töskupóst" haha getið aldrei skrópað!!
    -knús á þiig
    - Margrét;*

    ReplyDelete
  5. Guðríður: Já, ég hlakka að koma heim í ROSALEGT félagslíf! :) .. og 21.öldina.

    M.dan: Það er ekki neinn hádegismatur eins og í MB, og maður verður bara að sitja við skólaborðið sitt eða standa. :)

    Margrét: Vasaklúta, og svo eru allir með snýtibréf(litlar servéttur) í töskunni sinni!!

    KNÚS! <3

    ReplyDelete