Ég vona að nýja árið leggist jafn vel í ykkur og það leggst í mig. 2011 verður frábært ár. Ég er stútfull af orku og allt er eitthvað svo frábært og spennandi þessa dagana þótt svo að það sé búin að vera leiðinda kuldi og blindaþoka í viku!
Ég er bý núna hjá Clöru, Mauricio og Carlottu og er búin að vera hjá þeim í tæpa viku. Og áður en þið missið ykkur, þá er það bara tímabundið, í 2-3 vikur á meðan hin fjölskyldan vinnur úr einhverjum vandamálum sín á milli. Ég hefði reyndar ekkert á móti því að búa bara hér, hef það endalaust gott. Clara og fjölskylda búa í stóru, fallegu húsi í fyrir utan smábæinn Coccolia (sem tilheyrir Ravenna og er því slatta frá Forlí), með tveimur hundum, tæru sveitalofti og hanagali á morgnanna. Eini gallinn er auðvitað öll ferðalög, ég vakna fyrir klukkan 6 á morgnanna og tek skólabíl til Forlí kl.7:15, sem stoppar blessunarlega fyrir framan skólann minn tuttugu mínútur í 8. Ég sem er svo vön að skoppa bara í skólann rétt fyrir 8! Það að geta ekki eytt deginum vafrandi um miðbæ Forlí er eitthvað sem ég sakna líka. En þegar ég er komin í betri rútinu og búin að læra almennilega á strætókerfið blessast þetta allt saman.
Restin af jólafríinu mínu leið ansi ljúflega með morgunskokki eftir stíginum bakvið almenningsgarðinn í Forlí, nú eða morgunmat á einhverju kaffihúsi með vel völdu fólki, og dögum eyddum á útimörkuðum eða í búðarölti í miðbænum.
Síðustu helgi frísins tók ég mig til og fór á Cervia með Önnu(Þýskaland), systur hennar og vinum á skauta og svo héldum við Anna í leit að sjónum, en ströndin hér er öll girt af því á sumrin borgar fólk fyrir að fara á hana, þvílík hneysa! En við fengum allavega sjólykt.
Um kvöldið fórum við Anna svo í bíó með Dheu(Indónesía) og Matildu, sem er stelpa frá Ástralíu hérna í tveggja mánuða prógrammi(ekki á vegum AFS). Við fórum á ítölska mynd sem heiti La belezza del somaro, og er í einu orði algjört bull en gefur samt nokkuð góða mynd af því hvernig ítalir eru. Mun svo sannarlega að kaupa hana á dvd og neyða svo alla heima til að horfa á hana með mér!
Eftir myndina fórum við svo á lítið og kósý kaffihús/bar í Cesena sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Taktu bókabúðina úr Fríðu og Dýrið + gamalt bókasafn, hentu inn nokkrum borðum, kósý stólum og sófum og bar, bókalykt + kakó- og kaffilykt og hundruðum bóka og tímarita, og þú ert komin með stemminguna.
Þar gæddum við okkur á ljúffengu heitu súkkulaði, sem er svo þykkt að það minnir helst á kakósúpu í föstu formi, og spjölluðum fram á nótt. Ég gisti svo hjá Önnu í fallega, fallega húsinu hennar og daginn eftir fórum við með Danielu og Giödu á markað í Cesena áður en ég hélt heim á leið.
Síðasta laugardagskvöld horfði ég svo á Il Piccolo Nicolas E I Suoi Genitori, s.s. Le Petit Nicolas með Clöru og fjölskyldu. Sú mynd er orðin uppáhald, og ef þið hafið ekki séð hana drífið í því strax! Svo fór ég svo með Carlottu og vini hennar á einhvern bar/skemmtistað í Ravenna og þið getið ekki ímyndað ykkur nostalgíu-kastið sem að ég fékk þgar sum laganna komu, alltof miklar minningar frá söngkeppninni á AK og sumrinu! (Ps. allir statusar á facebook um hvað böll á Íslandi eru skemmtileg og hvað þið höfðuð það fokk gaman um helgina eru mjög óvelkomnir. Líka statusar um kjötsúpu, íslenskt nammi og pepsí max. Hafið það ógó leiðilegt þangað til í júlí). :-*
Það var auðveldara en ég hélt að byrja aftur í skólanum, að komast í rútinu. Frábært að sjá alla aftur og byrja að gera eitthvað af viti. Andrúmsloftið á heimilinu var samt orðið ansi stíft, svo að mér finnst rosalega gott að vera aðeins komin í sveitasæluna núna. Mér þykir rosalega vænt um fósturfjölskylduna mína, en ég er að reyna að njóta þess að vera hérna án allra áhyggja.
En aftur að skólanum. Mér gengur alveg æðislega, þó svo að ég vildi óska að ítalskan mín væri aðeins betri, saumavélaskrímslið á það stundum til að vera mannígt en allt annað gengur ljómandi vel. Í ensku þarf ég að sitja undir vitlausum framburð og þýðingum, og þarf oftar en ekki að bíta inn í kinnarnar til að þegja, en ég finn huggun í því að við erum allavega að lesa sonnetur Shakespeare. Í gær kynnti ég fyrir bekknum mínum sögu Íslands á 15.-18.öld á ítölsku og gekk líka ljómandi vel, þó að hálf-tyrkneski strákurinn hafi ekki verið að meta Tyrkjaránið og að að Tyrkir hefðu lengi vel verið réttdræpir á Íslandi. Í landafræði er ég að læra um Japan, og núna erum við að horfa á The Last Samurai, sem er auðvitað frábærlega valin mynd, enda óendanlega löng! Í næstu viku tek ég svo að mér enskukennslu í einskonar þemaviku-mótmælum í skólanum. Við sjáum til hvernig það fer.
Fyrirgefið bloggleysið, og myndaleysið. Ég er bara svo löt!
A presto.
Ykkar Eyrún.
Frábært að heyra frá þér. Ég vil fara á þetta kaffihús í Cesena, held það hæfi mér fullkomlega. Vona þú komir með fullt af ítölskum diskum og leyfir mér að horfa. Knús - afasystirin.
ReplyDeleteLOKSINS kom blogg! Ég er búin að bíða og bíða og bíða!
ReplyDeleteEkki gott að heyra að það eru erfiðleikar hjá fjölskyldunni þinni. En það er samt gott að þú hafir þá fengið aðra góða fjölskyldu á meðan :)
Þetta hljómar allt svo ótrúlega vel sem þú ert að gera! Og mig langar að fara á þetta kaffihús með þér :*
Þúsund knús og kossar til þín elsku Eyrún :* Hlakka brjálað til að sjá þig í júlí! Þá er það feitt osta- og Pepsi Max kósýkvöld!
aah, ég eiginlega bara öfunda þig á að vera þarna! :O hlakka ekkert smáá mikið til að sjá þig í sumar :D !
ReplyDeleteÞá er það elsi hránörs og eyránörs myndakvöld og beldeves popp haha :D
sakna þín sætust <3
-Elsa Hrönn
Úff, hvað er í gangi með fjölskylduna? Vona að allt verði betra!
ReplyDeleteEnskutímar ... úff ekki einu sinni byrja á þessu.
Njóttu vel í sveitasælunni!
"Taktu bókabúðina úr Fríðu og Dýrið + gamalt bókasafn, hentu inn nokkrum borðum, kósý stólum og sófum og bar, bókalykt + kakó- og kaffilykt og hundruðum bóka og tímarita, og þú ert komin með stemminguna."
ReplyDeleteÓMÆFOKKINGGOD öfund! Stalst til að lesa, vá hvað þetta hljómar allt vel :) Hafðu það gott!
-Jójó Stefáns
gott að kíkja í nokkrar vikur í sveitasæluna <3
ReplyDeleteHlakka mest til að sjá þiig ;*
ogg kaffihúsið hljómar veeeel, mjög vel :D
xoxo
Margrét
loksins hahaha gott að heyra ''lesa'' frá þér ohh er svo sammála því að 2011 verði æðislegt ár :D því að þú kemur heim :*
ReplyDeletesakna þín endalaust :*
Anna Margrét <3
Hæ, mig langar að sjá myndir. Við hvað vinna Clara og maðurinn hennar? Er einhver búskapur hjá þeim?
ReplyDeleteMa
Skemmtilegt blogg hjá þér elskan :0)
ReplyDeleteHafðu það yndislega gott og engar áhyggjur hér er allt ömurlegt á þessum tíma árs.. hehe
RISAknús til þín
Loksins loksins komið nýtt blogg búinn að bíða lengi:) var að vona að það kæmi allavega eitt áður en ég færi út til Svíþjóðar en það gekk ekki eftir. Alltaf gaman að lesa ný blogg. Leiðinlegt að heyra með fjölskylduna þín vona að það lagist.
ReplyDeleteBobba
"Við fórum á ítölska mynd"
ReplyDeletehahah mér finnst gaman að ég geti leiðrétt þig:D:D
hlakka svo til að þú komir heim! verð lika örugglega mesta partinn af sumrinu í borgarnesi:D vííj
-hannadora