Í dag er ég búin að vera á Ítalíu í 100 daga, það þýðir að það eru bara 204 eftir. Tíminn líður asnalega hratt. Með svona stutt í jólin var ég búin að búa mig undir heimþrá í dag, en í staðinn fékk ég bara hálsbólgu og kvef. Ég kvarta reyndar ekki, og ætla að nýta þennan morgunn í bloggskrif og íslenskt nammiát. Er búin að fá pakka frá mömmu og pabba, sem var meira en mánuð á leiðinni, og líka frá Ingu, Guðríði, Sólveigu og Margréti. Þessar elskur.
Ekki slæmt að eiga svona góða að
Desember er búin að líða mjög hratt og ánægjulega, með allkonar skemmtilegum frídögum og uppákomum. Ég skrapp með fósturforeldrum mínum til Cesenatico, sem er lítill, fallegur bær við Adríahafið, fór til Cesena oftar en einu sinni og eyddi deginum með Dheu og Francisco að labba um í fallega miðbænum og smakka allskonar góðgæti sem er selt þar á básum. Fór á viólutónleika í ljótu kirkjunni með fósturpabba á guð-fyllti-maríu mey-heilögum-andadeginum, fagnaði þriggja mánaða dvöl á Ítalíu, gerði salami heima hjá Clöru með gömlum köllum og sætum strákum, fór svo í AFS partý í Cesenatico þar sem að Ísland vann í Hvaða-land-gerir-bestu-hamborgarana keppninni, þetta var auðvitað bara venjulegur, sveittur ostborgari borinn fram með McCain frönskum! Svo var dansað salsa fram undir morgunn og mikið hlegið. Daginn eftir fór ég með Dheu á fótboltaleik sem að Lorenzo var að dæma og eftir það hittum við hina skiptinemana og skoðuðum jólaskreytingarnar og jólamarkaðinn, og enduðum auðvitað inn á uppáhaldskaffihúsinu okkar með nutella-latte. Svo fékk fékk ég pakka frá bestu stelpunum mínum á Íslandi með fallegum bréfum og íslensku nammi. Ég elska þessar mellur, eins og vitur maður eitt sinn sagði.
Cesenatico
Maya mín
Jólamarkaður í Cesena
Þessi er nýji litli bróðir minn :)
Verðlaunahamborgari in the making
Fólkið mitt :)
Á Santa Lucia(Lúsíumessu) fór ég með fósturforeldrunum á jólamarkað í Forlí, sem er loksins búið að skreyta smá. Svo byrjaði loksins að snjóa fyrir tveimur dögum, og ég skrapp en og aftur til Cesena þótt að allar samgöngur væru í rugli, fór á McDonalds með Matildu, Francisco og Dheu, og tók svo Indónesíu og Hondúras í LÍS 103 (Leika í snjónum). Síðustu dagar hafa svo aðallega farið í að klára að kaupa jólagjafir og svara bréfum, sem ættu að koma til Íslands á svipuðum tíma og ég, ef ég þekki póstþjónustuna hérna rétt.
Ánægð með snjóinn
Annars gengur allt áfallalaust og auðveldlega fyrir sig. Skólinn einkennist af hlátursköstum og teiknidúlleríi. Ég er orðin helvíti góð í blakinu þótt að uppgjafirnar séu ekki mín sterkasta hlið, og í gær komst ég loksins í körfubolta með einhverjum peyjum. Allar jólaskemmtanir hafa fallið niður því að einhver kennari í skólanum dó, en í staðinn fór ég bara í tölvutíma og las bloggið hennar Tobbu Marínós eins og venjulega, vantar bara einn latte. Þannig ættu allir skóladagar að vera.
Þetta er styttra en venjulega, en þið fáið örugglega mörg krassandi blogg um jólahefðir ítala, en mér skilst að fiskur og pasta séu á matseðlinum, og pakkarnir opnaðir 25. desember, sem er auðvitað skandall út af fyrir sig.
Kossar og knús til ykkra, og ég læt fylgja með guilty-pleasure lagið mitt.
Oh Eyrún! ég vil að minn pakki komi til þín! Díses ég vil bara fá þig heim núna! en þú ert næstum því hálfnuð haha :D Ég elska þarna myndina svörthvítu með snjóinn haha ert svo sæt! <3 -Ísfold Rán
Það verður gaman að fá að vita hvernig jólin verða á ítalska heimilinu þínu. Það verður nú dálítið öðru vísi hjá okkur pabba þínum þegar þú verður ekki heima. Enginn t.d. til að brjálast yfir skötulyktinni á Þorláksmessu :-)
haha hlakka til að heyra hvernig jólin verða hjá þér :) og gaman að þú skulir fá snjó yfir jólin þrátt fyrir að vera ekki á Íslandi :) alltaf gaman að lesa bloggið þitt Bobba
Þegar ég var að flækjast í Róm á síðustu öld voru við mikið að býsnast yfir póstsamgöngum milli Rómar og Óslóar. Svo lásum við einhversstaðar að það væru 5 miljónir ólæsra á Ítalíu og við vorum fljótar að reikna út að þeir ynnu allir á póstinum. En ástandið virðist semsagt óbreytt. Hafðu það ljúft um jólin og njóttu upplifunarinnar. Það verður örugglega gaman. (Vorkenni mömmu þinni og pabba meira að vera Eyrúnalaus um jólin). Kær kveðja afasystirin - nú í Kópó.
Ég var alveg nett stressuð yfir því að pakkinn kæmist ekki til skila! Þessir Ítalir mættu alveg fara að íhuga það að bæta úr þessari póstþjónustu sinni!
En frábært að heyra að allt gengur vel og það sé gaman hjá þér :)
Hver elskar ekki þessar mellur? Hahaha þú ert ávallt sami meistarinn! Og mikið var ég glöð að vita að pakkinn okkar kom á réttum tíma :D Og hún Tobba Marinós klikkar seint, en mér finnst þú nú samt vera skemmtilegri bloggari en hún! Hlakka til að lesa jóla-bloggið þitt vinan! Sólveig :*
Þetta líkar mér! En annars eru jól bara jól og ekkert vit í að væla eða fá heimþrá þegar maður býr á ÍTALÍU.. hehe ;) Við eigum öll eftir að sakna þín mikið og skrítið að hafa þig ekki heima elskan. Held þú fair ekki að gera margt annað en að hanga á skype yfir hátíðarnar og tala við Ísland. Bestu kveðjur til þín og njóttu þín í botn Lov BB & beibís
Oh Eyrún! ég vil að minn pakki komi til þín!
ReplyDeleteDíses ég vil bara fá þig heim núna! en þú ert næstum því hálfnuð haha :D
Ég elska þarna myndina svörthvítu með snjóinn haha ert svo sæt! <3
-Ísfold Rán
Það verður gaman að fá að vita hvernig jólin verða á ítalska heimilinu þínu.
ReplyDeleteÞað verður nú dálítið öðru vísi hjá okkur pabba þínum þegar þú verður ekki heima. Enginn t.d. til að brjálast yfir skötulyktinni á Þorláksmessu :-)
haha hlakka til að heyra hvernig jólin verða hjá þér :) og gaman að þú skulir fá snjó yfir jólin þrátt fyrir að vera ekki á Íslandi :) alltaf gaman að lesa bloggið þitt
ReplyDeleteBobba
Þegar ég var að flækjast í Róm á síðustu öld voru við mikið að býsnast yfir póstsamgöngum milli Rómar og Óslóar. Svo lásum við einhversstaðar að það væru 5 miljónir ólæsra á Ítalíu og við vorum fljótar að reikna út að þeir ynnu allir á póstinum. En ástandið virðist semsagt óbreytt. Hafðu það ljúft um jólin og njóttu upplifunarinnar. Það verður örugglega gaman. (Vorkenni mömmu þinni og pabba meira að vera Eyrúnalaus um jólin). Kær kveðja afasystirin - nú í Kópó.
ReplyDeleteÉg var alveg nett stressuð yfir því að pakkinn kæmist ekki til skila! Þessir Ítalir mættu alveg fara að íhuga það að bæta úr þessari póstþjónustu sinni!
ReplyDeleteEn frábært að heyra að allt gengur vel og það sé gaman hjá þér :)
Kossar og knús til þín elsku Eyrún :*
Hver elskar ekki þessar mellur? Hahaha þú ert ávallt sami meistarinn! Og mikið var ég glöð að vita að pakkinn okkar kom á réttum tíma :D Og hún Tobba Marinós klikkar seint, en mér finnst þú nú samt vera skemmtilegri bloggari en hún!
ReplyDeleteHlakka til að lesa jóla-bloggið þitt vinan!
Sólveig :*
Þetta líkar mér!
ReplyDeleteEn annars eru jól bara jól og ekkert vit í að væla eða fá heimþrá þegar maður býr á ÍTALÍU.. hehe ;)
Við eigum öll eftir að sakna þín mikið og skrítið að hafa þig ekki heima elskan.
Held þú fair ekki að gera margt annað en að hanga á skype yfir hátíðarnar og tala við Ísland.
Bestu kveðjur til þín og njóttu þín í botn
Lov BB & beibís