Saturday, December 25, 2010

Jólablogg I

Gleðileg jól, kæru Íslendingar.
Hér sit ég í stóru kojunni minni um jólanótt, mamma og pabbi sofnuðu svo að við förum líklegast ekki í miðnæturmessu úr þessu. Pakkinn frá mömmu og pabba á Íslandi komst því miður ekki í tæka tíð, en póstmaðurinn hefur samt komið með rauða pakka handa mér á næstum því hverjum degi, og alltaf eru þeir jafn velkomin sjón.
Ég ákvað að nú væri jafn góður tími og hver annar til að opna íslensku pakkanna mína og blogga smá, fyrst að ég fann smá jólaskap og hátíðleik. Því sit ég hér með Diskóeyjuna í eyrunum(í Eyrúnum?) umkringd gjafapappír, og gjafirnar í ár voru aldeilis ekki af verri endanum. Takk stelpur, vi voglio bene.

Þorláksmessa var skrítinn dagur. Síðasti skóladagurinn, loksins komið jólafrí. Ég byrjaði á að fara í klippingu með mömmu, fékk loksins mína jólaklippingu. Þegar ég kom heim beið eftir mér fallegur og rauður pakki merktur Póstinum frá Ísfold minni, svo að dagurinn byrjaði aldeilis vel. Svo bráðnaði seinasti snjórinn, en það var spáð mikilli snjókomu daginn eftir, sjálfann Aðfangadag. Á meðan fjölskyldan mín á Íslandi hittist í Skötuboði heima borðaði ég harðfisk með bróður mínum og hundinum og horfði á Big Bang Theory, því að mamma nennti ekki að elda. Þó að skatan sé ekki í miklu uppáhaldi hjá mér er þetta skemmtileg hefð og ég held að ég geti ekki kvartað á næsta ári. Ég saknaði samt mest að fara ekki í kaupfélagið með pabba og kaupa inn fyrir jólin, alltaf rífandi jólastemming í Hyrnutorginu á Þorláksmessu.

Á Aðfangadag vaknaði ég seint(um kl. 10) og missti því að fara í jólainnkaup með mömmu. Ég fékk pasta í hádegismat, og eftir hann horfði ég á jóla-Simpson þátt með fjölskyldunni. Þegar klukkunna loksins sló 6 (það slóu samt engar klukkur, sem að mér þótti mjög sorglegt) var ég ein heima að horfa á True Blood. Bróðir minn með vinum sínum og foreldar mínir úti að labba með hundinn. Þegar þau komu heim opnuðum við nokkrar gjafir, og mikið fannst mér leiðilegt að hafa ekkert að af gefa þeim því að jólagjafirnar þeirra frá mér eru líklegast komnar til Kuala Lumpur ef ég þekki póstþjónustuna hérna rétt. Ég fékk úr, ótrúlega fallega eyrnalokka, bókina Il Piccolo Principe og rauðar nærbuxur (það boðar lukku að klæðast rauðum nærfötum á nýársnótt.) Eftir það talaði ég við fjölskylduna mína á Íslandi á skype, yndislegt að sjá þau og upplifa smá íslensk jól. Jólaskapið hefur nefnilega ekki verið mikið hjá mér, því að hér er svo lítið sem minnir á jólin. Snjórinn er bráðnaður, og það eru eiginlega engar skreytingar, hvorki í heimahúsum né í bænum. Það heyrast varla nein jólalög í útvarpinu og vantar hreinlega þennan jólaanda og hátíðleik sem ég vanalega finn dagana fyrir jól. En það að tala við litlu krúttin mín um hvað þau fengu í jólagjöf kippti því í lag, og ég held að það sé óhætt að segja að ég verði mikið jólabarn næstu jól. Ekkert jafnast á við íslensk jól. :)
       
Sætu pabbi og mamma á Íslandi :)


Og hér sit ég ennþá með þrist og smákökur frá tvennunni Elsu og Jovönu, hamingjusöm og þakklát fyrir góða vini og góðar fjölskyldur og þetta tækifæri sem ég hef fengið til að skoða heiminn og prófa nýja hluti. Guð mætti þó henda inn í Egils Malt og Appelsín, jólasnjó og hangikjöti.. just sayin'. :)

Gleðileg Jól - Buon Natale - Glædeleg Jul - Happy Christmas - Feliz Navidad


Vona að þið hafið það gott, og að þið borðið mikið og hlæjið meira
Baccione
xoxo

Eyrún


4 comments:

  1. Æi elsku Eyrún! ;**
    Haha nennti fósturmamman ekki að elda whaat :')
    og mjög sæt mynd af mömmu þinni og pabba haha!
    Já þú hefðir ekki viljað að vinna í Hyrnunni á Þorláksmessudag var að vinna þar í 12 tíma og að kafna í skötulyktinni vertu fegin að losna við það, þetta er viðbjóður!
    - Ísfold Rán

    ReplyDelete
  2. ég er í frakklandi og vildi bara bæta einu við listann þinn........Joyeux noël :)
    en já voða róleg jólin hérna líka..erfitt að trúa því að það séu jól!
    -Rósa

    ReplyDelete
  3. Gleðileg jól elsku Eyrún! Ég vona að þú njótir þeirra þrátt fyrir að þau séu ekki íslensk og ekki mjög hátíðleg þetta árið :)

    Jólaknús og kossar til þín :*

    P.s. Hvernig er diskurinn? Kiddi Jói mælti sko með honum! ..og Inga sagði að hann væri góður haha

    ReplyDelete
  4. vá eg gæti grátið yfir þessu bloggi! en ömurleg jól hah
    mig dreymdi þig btw i nótt að ég kom i heimsókn! vona að mig dreymi það sem á eftir að gerast hehh
    miss youu & gleðileg jol:*
    -hannadora

    ReplyDelete