Eitthvað voru sumir farnir að kvarta yfir bloggleysi hjá mér, og þá ætla ég að nota tækifærið til þess að kvarta yfir commentleysi hjá öðrum. Það fer rosalega mikil vinna í hverja færslu hjá mér og commentin ykkar skipta mig meira máli en þið getið ímyndað ykkur, og ekki kosta þau ykkur neitt. :)
Ég hef ekki frá miklu að segja, en ég ætla nú samt að reyna að koma einhverju mis-gáfulegu frá mér. Málið er að þegar maður er skiptinemi, hefur maður óvenjulega mikinn tíma til að hugsa og leiðilegar kennslustundir þar sem maður skilur ekkert breytast oft í Plana-Hvað-Ég-Ætla-Að-Gera-Í-Lífinu-Tíma, eða ef það er slæmur dagur Ó-Hvað-Ég-Sakna-Lífsins-Míns-Tíma. Oftast samt það fyrrnefnda.
Ég er tildæmis búin að ákveða það að ég ætla sem sjálfboðaliði til Afríku eða Indlands þegar ég klára stúdentinn (http://www.aevintyri.blogg.is/ kíkið á þetta blogg) og svo langar mig líka til að vera Au-pair í Englandi, Þýskalandi eða Bandaríkjunum. Auk þess langar mig rosalega í nám í Englandi eða Danmörku, svona til að ná dönskunni fullkomnlega, en ég er orðin ansi sleip af því að reyna að halda uppi samræðum við danska vini mína hérna á þeirra ylhýra. Svo er ég búin að vera að skoða háskólanám heima á netinu, og mig langar bara til að læra allt! Líffræði, sagnfræði, bókmenntir, fornleifafræði, tungumál, nefndu það!
Ég ætti kannski að reyna að einbeita mér af því sem að ég er að gera núna, og klára svo skólann þegar ég kem heim, en þessi tími sem ég hef eytt hérna hefur virkilega fengið mig til að hugsa um hvernig ég vil eyða lífinu og hvað ég vil reyna að afreka, hvað ég vil sjá og hvað ég vil prófa. Mig langar svo margt, og ég mun svo sannarlega reyna að gera sem flest af því, og gera það með fólki sem að mér þykir vænt um.
Sumarið 2011 er orðið vel planað, og það verður sko engin lognmolla yfir mér þegar ég kem heim! Auk þess ætla ég að taka mér ansi margt fyrir hendur; taka skiptinema, vinna með skólanum, halda áfram söng- og fiðlunámi, vera í Gettu-Betur hópnum og kórnum í MB ef þau vilja mig, halda áfram í skátunum, byrja aftur í körfubolta og vera dugleg að mæta í spinning og auðvitað reyna að teka sem flestar einingar í skólanum og standa mig þar! Við sjáum hvernig þetta gengur, haha!
En aftur af lífs- og ferðaplönum. Sumt af þessu hljómar kannski ógáfulega og óraunsætt, en mig langar t.d. að fara til Suðurskauts-landsins, sjá Machu Piccu, klífa Kilimanjaro í Kenýa, búa í Englandi og einhverju norðurlandanna, fara til Egyptalands og sjá píramídanna og Níl, fara til Indlands, sjá komodo-dreka í Indónesíu, fara til Serbíu, keyra þvert yfir Bandaríkin og sjá Grand Canyon og fl. staði, fara í fallhlífastökk, fara til Istanbúl, klappa ljóni, sjá Kínamúrin, Karstic peaks og forboðnu borgina, ferðast um Sahara-eyðimörkina, sjá Mount Everest, fara til Parísar og sjá Versali, synda með höfrungum og hvalháfum, fara til Grikklands, fara til Ástralíu og sjá stóra kóralrifið og Rauða-Klett, hlaupa á eftir leigubíl með take-away kaffi í Manhattan, fara til Búdapest, fara til Rússlands og sjá Vetrarhöllina í Pétursborg, Moskvu og Síberíu, fara til Páskaeyja og svo miklu, miklu meira.
Ég nefndi ekki einu sinni alla hlutina sem að mig langar að sjá og prufa hérna á Ítalíu (það yrði bara of langt) og öll tungumálin sem mig langar að læra, en ég ætla svo sannarlega að reyna að gera sem flest af þessu. Ég þarf auðvitað að finna tíma fyrir þetta allt saman, svona samhliða námi, vinnu og fjölskyldu í framtíðinni. En hey; það er hollt að láta sig dreyma!
Ætli ég endi sem einhleypa frænkan sem kemur aldrei á fjölskyldumót en sendir bara póstkort frá framandi löndum og kemur heim með skemmtilegar gjafir handa krílunum sínum? Úff..
Punktur og basta í bili.
xoxo
Ykkar Eyrún
- Frá framtíðarferðalögum mínum!










Lærum frönsku saman þegar þú kemur heim!!
ReplyDeleteEn annars held ég að þú ættir að reyna að njóta ævintýrsins sem þú ert að upplifa núna sem best! Þetta verður flogið hjá áður en þú veist af :)
Kossar og knús,
Inga
Heyrðu, ég ætla að stela þessum lista þínum.
ReplyDelete-Jón Örn
Svo ætla ég að spamma öðru hérna inn svo þú fáir örugglega nóg af commentum.
ReplyDeleteHvernig gengur annars með mafíósaveiðarnar?
-Jón Örn
Ég sleppti reyndar take-away kaffinu í Manhattan...
ReplyDelete-Jón Örn
Ég les líka alltaf bloggin þín, en er ekki frá því að þetta sé fyrsta kommentið, sem er skammarlegt!
ReplyDeleteen eyrún, ekki öfunda mig samt - það sem þú ert að gera á ítalíu er örugglega ekkert verra heldur en það sem ég er að gera hér :)
ætla líka að bæta við að ég skil þig SSSVVVOOOO VEEEEEELLLL með þessi framtíðarplön, ég hef reyndar alltaf verið svona (meira að segja verri), en á þessu ári er ég bara enn bjartsýnari því þetta er miklu léttari en ég hélt :)
hafðu það áfram gott á ítalíu, heyri svo kannski í þér við tækifæri!
Ef kaffið er Starbucks þá er minn listi nokkurn veginn eins. Ég þarf að fara að skrifa rununa niður, svona til þess að þetta sé aðeins markvissara!
ReplyDeleteGangi þér vel með plönin. ^^
Pant koma með þér í öll þessi ferðalög! Sérstaklega til Manhattan að hlaupa á eftir Taxa með Take-away Starbucks kaffi! Haha
ReplyDeleteMig langar líka til að ferðast út um allt og læra allt og gera allt!
Elska að lesa bloggin þín, þau eru alltaf svo skemmtileg :)
Knús og kossar til þín :*
P.s. Ég hef klappað ljóni! En það var reyndar blettatígursungi en það er aukatriði. Hélt meira segja á honum og á mynd af því til sönnunar!
Frábært! Mér líst sko ansi vel á þessi lífsplön þín elskan :D Ég dipsa að koma memm til Parísar! Og að læra frönsku með þér og Ingu :D
ReplyDeleteHafðu það nú gott elsku Eyja mín :)
p.s. láttu vita þegar þú fræð pakkann frá okkur :D oog alls ekki hætta að blogga! Því það kostar ekki neitt hehe! :)
Sólveig
flott blogg hjá þér ! líst vel á þessi plön þín ! þú átt eftir að ná langt í þessu öllu saman ég hef trúa þér ;-) en hafðu það rosa gott, gaman að geta fylgst með þér Eyrún :-)
ReplyDeleteknús Birna Ósk :-)
Við skulum vona að þú náir að gera sem mest af því sem er á þessum lista og að þú finnir einhvern til að gera það með svo að þú endir ekki sem einhleypa frænkan :D, en já alltaf gott að láta sig dreyma og rosalega líst mér vel á planið með að byrja aftur í körfunni :) alltaf jafn gaman að sjá ný blogg of ég skal reyna að vera duglegri að kommenta
ReplyDeleteBobba
Ég held að flestir séu að skoða þetta en að þeir þori ekki að kommenta haha.
ReplyDeleteVið býðum spennt eftir þér í kórnum, vantar svona Eyrún rödd í kórin :D
Mundu bara að það kostar að gera allt þetta og kreppan minnkar líkurnar, en þá koma styrkirnir til sögu.
Gaman af þessu.
Mdan
Hæ elskan :*
ReplyDeleteMér líst svakalega vel á þessi plön hjá þér! Þú ert svo dugleg að þú átt eftir að massa þetta allt saman :) Ég allavega nærist af því að ferðast og skoða heiminn svo ég skil þig svo vel!!
knús á þig sæta :*
kíktu líka á Bylgju, frekar spennó!
ReplyDeletehttp://www.siljaogbylgja.blogspot.com/
Inga og Sólveig: Mér líst vel á að læra frönsku saman!
ReplyDeleteJón Örn: Ég sting bara mafíósum í fanelsi
Rakel: Þessi framtíðarplön eru alveg, ég hef einmitt allaf verið svona líka!
Birna: Hættu þessu veikindastússi, kona!
Bobba: Þú dregur mig á körfuboltaæfingar næsta vetur, haha!
Daníel: Jibbí, spennt að koma í kórinn! :D
Brynja: Geðveikt blogg, ég væri alveg til í að vinna með tígrisdýrum og munkum!
Knús og kossar.. hjartað mitt hoppaði hálfa leið upp Everest af gleði við að sja öll þessi komment svona fljótt! :*
Þetta er ekkki flókið Eyrún..
ReplyDeleteþú og ég í heimsreisu :))
þúogég ;)
knús Margrét
Heimsreisa it is Grettlez!
ReplyDeleteKnús! :*
like like LIKE á England! manstu við erum að fara saman þangað! ekki gleyma mér haha!
ReplyDeleteknús á þig ást! <3 þú veist nátla að þín er sárt saknað hérna!
- Ísfold Rán
heyrðu mér líst á þetta við bara gerum þetta allt saman :D
ReplyDeleteþú gleymdir að nefna harry potter 7 part 2 í sumarið 2011!!!! wtf sko
ReplyDeleteog dips að koma með til ástralíu, langar að finna tannlæknastofuna í nemo þar:$